fbpx

Sýnikennsluvideo Kinnalitur

Þegar ég birti þessa færslu HÉR gaf ég loforð um sýnikennsluvideo þar sem ég sýndi hverni ég notaði kinnalitinn.

Ég skellti í eitt myndband og í því sýni ég tvær mismunandi útgáfur af því hvernig ég nota kinnaliti. Báðar aðferðirnar virka með hvaða kinnalit sem er bæði krem og púður. Í myndbandinu nota ég uppáhalds litinn minn þann sama og í fyrstu færslunni sem er frá Dior.

Mér finnst fallegur kinnalitur ómissandi fyrir hvaða förðun sem er. Hann gefur húðinni fallegan roða og gerir svo mikið fyrir lokaútkomuna.

Þennan ætla ég að vera með annað kvöld þegar við á Trendnet ætlum að halda almennilega uppá 1 árs afmæli síðunnar – ef ykkur langar að vera með endilega tékkið á þessu HÉR.

Ég vona svo sannarlega að þetta stutta sýnikennsluvideo hjálpi ykkur – næsta verður um skyggingu andlitsins með möttu sólarpúðri!

EH

Gestakennari í Mood Makeup School

Skrifa Innlegg