fbpx

Annað Dress: Lúðurinn

Annað DressLífið Mitt

Á föstudagskvöldið síðasta fór ég ásamt mínu samstarfsfólki á auglýsingastofunni Jónsson & Lemacks á verðlaunaafhendingu Lúðursins. Lúðurinn eru verðlaun sem eru afhent í auglýsingaheiminum fyrir þær auglýsingar sem þykja hafa skarað framúr undanfarið. Screen Shot 2014-02-24 at 10.54.38 PMVerðlaunafhendingin fór fram inní Eldborgarsal Hörpu og stofan sem ég vinn fyrir vann einn Lúður í þetta sinn :) Fyrir verðlaunin byrjuðum við inná stofu þar sem var haldin smá uppskeruhátíð og við borðuðum saman dýrindismáltíð!1972398_10203242482773779_1997106271_nMamma og hennar samstarfsfólk á Samgöngustofu fór með sigur af hólmi í flokknum Almannaheill auglýsingar, aðrir miðlar og hlutu þau Lúður fyrir herferðina Höldum Fókus sem var samstarfsverkefni Samgöngustofu, Símans, Tjarnargötu og ENNEMM.
Screen Shot 2014-02-24 at 10.54.26 PMFyrir dress kvöldsins stalst ég í smá innblástur frá dressinu hennar Angelinu Jolie á Bafta hátíðinni sem fór fram fyrir rúmri viku síðan. Þar klæddist Anglina svartri buxnadragt frá Saint Laurent – mín er ekki alveg í sama verðflokki…

Jakki: VILA
Skyrta: Lindex
Buxur: VILA
Skór: Zara
Makeup: Góð blanda af L’Oreal, Maybelline, MAC og reyndar Yves Saint Laurent!

Frábært kvöld þó svo verðlaunaafhendingin sjálf hafi tekið alltof langan tíma…

EH

Litríkar neglur!

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

Skilaboð 1

  1. Sirra

    26. February 2014

    Algjör töffari!