fbpx

Á allra vörum glossin

DiorÉg Mæli MeðNýtt í snyrtibuddunni minniSnyrtibuddan mínVarir

Mig langaði að sýna ykkur myndir af glossunum sem voru valin til að vera Á allra vörum glossin í ár. Eins og áður eru tvær týpur í boði. Bæði glossin innihalda örfín glimmerkorn sem endurkasta birtu af vörunum ykkar svo þær fá fallegan glans. Annað glossið er bleiktóna með hvítum glimmerögnum og hitt er rauðtóna með gylltum glimmerögnum. SONY DSC

Hér sjáið þið hvernig þau koma út á vörunum mínum.

SONY DSC

Hér er ég með bleiktóna glossinn – hann heitir Princess og er nr. 553.

SONY DSC

Hér er ég með þann rauðtóna, hann heitir Diablotine og er nr. 643.

Ég er bara með glossana – ekkert annað á vörunum. Ég hef alltaf verið mjög hrifin af Dior glossunum, þau eru þétt en ekki of þykk, þau glansa en eru ekki og blaut svo þau renna ekki til. Þið getið notað þau yfir bæði varaliti og varablýanta – ég elska pensilinn sem kemur með þeim það er svo þæginglegt að nota hann og hann setur alltaf jafnt lag af glossunum yfir varirnar.

Veljið ykkur þann lit sem ykkur líst best á – eða jafnvel bara báða!

EH

Náðu lúkkinu hennar Cöru

Skrifa Innlegg