Þegar ég kallaði eftir ykkar áliti á bestu snyrtivörunum langaði mig að gera eitthvað um leið fyrir lesendur mína. Ég ákvað því að skella í smá leik um leið og verðlauna eigendur 5 athugasemda með smá glaðning svona rétt fyrir hátíðirnar.
Verðlaunin í þessum leik eru gjafaöskjur frá Maybelline sem innihalda The Rocket Volum’Express maskarann og Master Precise blauta eyelinerinn sem er að mínu mati einn sá besti á markaðnum í dag! Hér sjáið þið hvernig gjafaaskjan lítur út:Ég notaði „random number generator“ til að velja fyrir mig sigurvegarana. Í þetta sinn eru það þessar skvísur sem fá glaðning:
- Karen Ýrr sem sagði m.a. að uppáhalds eyelinerinn sinn væri Maybelline eye studio lasting drama gel eyeliner.
- Freyja sem sagði m.a. að besti maskarinn væri High Impact maskarinn frá Clinique.
- Ragna Björk sem sagði m.a. að besta fljótandi farðinn væri Chanel Vitalumiere Aqua.
- Íris Ósk Vals sem sagði m.a. að Dior Iconic maskarinn væri sá besti sem hún hefur prófað í langan tíma.
- Herdí sem sagði m.a. að besta BB kremið væri kremið frá Gosh
Þið megið svo endilega senda mér línu á ernahrund(hjá)trendnet.is með fullu nafni og heimilisfangi svo ég geti sent glaðninginn til ykkar.
Takk kærlega fyrir að taka þátt!
EH
Skrifa Innlegg