Ég veit ég er svakalega persónuleg á blogginu mínu en ég held þó að þið vitið kannski ekki alveg allt um mig og ég ákvað því að skella saman 10 sniðugum
- Ég er lífshættulega hrædd við hjól… Já ég veit ég er stórfurðuleg en ég hræðist fólk á hjólum – mér líður t.d. ekkert sérstaklega vel í Kaupmannahöfn. Það er bara eitthvað við þetta að ég hræðist það að það verði keyrt yfir mig af einhverjum á hjóli – ég held bara að það verði svo vont. En þar af leiðandi held ég að ég hafi varla hjólað í svona 10 ár. Ég bara get það ekki :(
- Ég eyði óheyrilega miklu magni af tekjunum mínum í hverjum mánuði á Te & Kaffi. Þar finnst mér besta kaffið og starfsmenn á alltof mörgum kaffihúsum eru með það á hreinu hvernig ég vil helst kaffið mitt – ég elska það en ég skammast mín líka smá!
- Það eru held ég ekkert sérstaklega margir sem vita hvað ég geri. En undanfarin 5 ár hef ég starfað sem sjálfstætt starfandi samfélagsmiðla ráðgjafi – sem þýðir að ég vinn við að vera á Facebook og Instagram!
- Þegar ég var í 6. bekk í versló var ég útnefnd Marmaradrottning skólans í þáttunum 12:00…. ég hef aldrei tekið þessum titli sem hrósi ;)
- Ég er ein af þeim sem panta aðeins of oft Dominos pizzu – ástæðan er sú að mér finnst fátt betra en brauðstangirnar á Dominos. Ég krefst þess þó alltaf að fá þær lítið bakaðar með mikilli olíu og kryddi og ef þær eru ekki mér að skapi hringi ég og kvarta og bið um nýjar. Ég held ég sé ekki vel liðin hjá Dominos.
- Uppáhalds bókin mín er Wuthering Heights – ég safna útgáfum af þessari æðislegu sögu sem er þó frekar mikið sorgleg og niðurdrepandi en það er bara eitthvað við hann Heithcliff sem heillar. En á eftir þeirri bók fylgja allar bækurnar hennar Jane Austen.
- Ég á mér þann heita draum að fá að keppa fyrir Íslands hönd í Eurovision – verst ég get eiginlega ekki sungið. En vonandi fæ ég bara að fara einhver tíman sem sminka í staðin!
- Ég hef farið úr báðum axlarliðum – það gerðist á innan við ári. Í fyrra skiptið dansaði ég mig úr lið, var þá staðsett einhvers staðar á hálendi Íslands og þurfti far í bæinn með Björgunarsveitinni.
- Uppáhalds Disney myndin mín er Pétur Pan – mig langar bara svo að geta flogið sem er mjög sérstakt þar sem þið finnið varla lofthræddari einstakling en mig.
- Ég veit fátt skemmtilegra að eyða alltof miklum tíma í að blogga. En ég held svo sem að þið vitið það best af öllum og ég er harð ákveðin í því að þegar mér verður farið að finnast þetta leiðinlegt þá hætti ég. Maður á að lifa lífinu hamingjusamur og gera það sem manni finnst skemmtilegt að gera. Lífið er alltof stutt fyrir leiðinlega hluti!
Ein svona random skemmtileg færsla sem gefur ykkur smá meiri tilfinningu hver ég er. Eitt af því sem mig langar að bæta við er að fyrir svona ári síðan ákvað ég að reyna að láta jákvæðni ráða lífi mínu, hætta öllu rugli og einbeita mér að því að brosa framan í heiminn og hrósa fólkinu í kringum mig. Mæli eindregið með því að fleiri tileinki sér það – gagnrýni og neikvæðni er alltof áberandi í íslensku samfélagi og lífið á að vera skemmtilegt – það verður sko miklu skemmtilegra þegar maður brosir framan í heiminn því í alvörunni heimurinn brosir tilbaka!
Eigið góðan fimmtudag***
EH
Skrifa Innlegg