Það er komið sumar – alla vega hér fyrir utan gluggann minn í vinnunni á Laugaveginum. Ég er alveg í skýjunum með veðrið og mig langar eiginlega sem minnst að hanga inni í vinnunni. Ég ætla þó aðeins að vera hér lengur og reyna að koma frá mér nokkrum verkefnum áður en ég set upp sólgleraugun og held inní helgina. Mest langar mig þó að eyða deginum með syni mínum sem held ég sé á leiðinni í Húsdýra- og Fjölskyldugarðinn með dagmömmunum sínum – vá hvað ég væri til í að vera með:)
En í dag langar mig að gleðja ykkur með naglalakkaglaðning frá vefversluninni nola.is. Ég sýndi ykkur nokkur skemmtileg myndbönd með thermal naglalökkunum frá Bubblelina sem komu nýlega til Íslands HÉR. En nú er komið að því að leyfa lesendum að prófa og sjá hvernig ykkur finnst ;)
Ég fékk að prófa tvo fallega sumarliti sem smellpassa fyrir veðrið í dag!
Hér er ég með naglalakkið Don’t Let The Man-go! – þetta naglalakk ilmar eins og mangó ávöxturinn alveg ótrúlega góður ilmur:)
Hér er það liturinn Orange You Glad. Kaldi liturinn er svona sterkur orange litur en heiti liturinn er ljósbleikur og krúttlegur.
En því miður þá eru þessir skemmtilegu sumarlitir uppseldir í augnablikinu svo þið fáið að velja úr tveimur öðrum litum….
Hér sjáið þið litina Pink is The New Black og Traces of my Lipstick…
Til að eiga kost á að vinna annað hvort naglalakkið þurfið þið að:
1. Smella á Like takkann á þessari færslu.
2. Smella á Like takkann á Facebook síðu Nola.is HÉR.
3. Skrifa í athugasemd við færsluna hvorn litinn ykkur langar í:)
Sigurvegararnir verða kynntir á sunnudaginn – gleðilegan sumardag!
EH
Skrifa Innlegg