Fyrir stuttu síðan farðaði ég fyrir lookbook myndatöku fyrir hina yndislegu Andreu Magnúsdóttur, fatahönnuð og eiganda verslunarinnar Andrea Boutique. Ég hef nú nokkrum sinnum fengið að vera með í myndatökum hjá henni og þá aðallega verið að dást að fötunum og taka baksviðsmyndir en nú var komið að mér að sjá um förðunina.
Hér sjáið þið nokkrar myndir úr myndatökunni….
Ljósmyndari: Aldís Pálsdóttir
Stílisti og hönnuður: Andrea Magnúsdóttir
Fyrirsætur: Ágústa Ósk og Magdalena Sara
Förðun og hár: ég – með vörum frá L’Oreal
Föt og skart: AndreA Boutique
Sokkar & Sokkabuxur: Oroblu
Mér finnst þessir krosssniðnu bolir ótrúlega flottir. Þeir eru til í nokkrum mismuandi litum og printum. Óli maðurinn hennar Andreu gerði þetta print sem þið sjáið á samfestingnum sem Ágústa er í. Óli er grafískur hönnuður og setur upp öll printin fyrir hana Andreu – þau eru algjört power couple þessi tvö! Ég er ennþá að reyna að átta mig á því hvernig mér tókst að gera þessa fínu fléttu í Magdalenu – það tók tvær tilraunir en þetta gekk upp á endanum með smá þolinmæði.Ég á kögurjakkann í svörtu og ég dýrka hann – hann er væntanlegur í búðina innan skamms.
Mér finnst þessi þvottur á mínu uppáhalds sniði frá LEE – Scarlett – alveg ótrúlega flottur og sumarlegur.Óli hennar Andreu hannaði líka þetta print – sjálf á ég þennan kimono en ég keypti hann fyrir nokkru síðan. Mér finnst hann ótrúlega fallegur og fullkomin flík til að vera í yfir plain kjól og gera hann fínni. Smell passar líka inní kimono tískuna sem er allsráðandi núna :)
Ég var alltof löt að taka baksviðsmyndir í þetta sinn en hér eru þó fjórar sem mér fannst skemmtilegar af þeim fáu sem ég tók…
Frábært teymi og aðdáun mín á Andreu og Aldísi er svo mikil og ég hreinlega dýrka að vinna með svona hæfileikaríkum konum – þær tvær eru algjörir gullmolar! Ég var eiginlega að fá að stela þessari mynd sem ég tók einmitt af þeim vinkonunum í smá ljósatesti – það er líka gaman að leika sér smá í myndatökum:)Þessar eru yndislegar og ég er svo þakklát fyrir að eiga þær að og að fá að vinna svona oft með þeim:)
Hvet ykkur til að gera ykkur leið í Hafnafjörðinn í AndreA Boutique til að skoða úrvalið af fallegum flíkum betur. Það getur þó verið hættulegt fyrir veskið – alla vega hef ég aldrei farið tómhent þaðan út.
EH
Skrifa Innlegg