Í júlí fór ég í skemmtilegt verkefni útá land með ljósmyndaranum Aldísi Pálsdóttur. Myndatakan var fyrir CD cover hjá íslenskri söngkonu sem er búsett í DK – Hjálfríði Þöll Friðriksdóttur.
Mér finnst svo æðislegt að vera utandyra í verkefnum og ég tala nú ekki um þegar maður kemst aðeins útí sveit. Hér eru nokkrar baksviðs myndir frá fallegum degi við Seljalandsfoss.
Það er rosalegur kraftur í þessum fossi – ég varð bara dáleidd af því að horfa á vatnið falla.Ég efast ekki um að útlendingarnir hafi verið voðalega hissa á Aldísi sem tók bara myndir af berginu í kringum fossinn en ekki af honum sjálfum.Ef þeir hefðu nú bara stoppað og horft á það sem hún var að taka myndir af þá hefðu þeir fattað hvað var í gangi. Hér sjáið þið smá brot af umhverfinu sem heillaði okkur uppúr skónnum. Svona fallega litasamsetningu er ekki hægt að fatta uppá sjálfur – alla vega myndi ég ekki geta það. Íslensk náttúra í sínu fegursta.Hress eftir góðan tökudag.Það var í þessari myndatöku sem ég kynntist fallega postulínsfisknum frá Hring eftir Hring. Þessar viðarslaufur er ég líka mjög skotin í – postulínsfiskinn getið þið séð HÉR.Ég notaði meðal annars Teint Visionnaire farðann frá Lancome – farði og hyljari saman í einu. Þetta er frábær farði sem ég get ekki hrósað nóg. Mæli hiklaust með honum – meira HÉR.
Frábær dagur sem skilaði mér heim í bæinn endurnærðri og fullri af orku – hlakka til að sjá útkomuna.
EH
Skrifa Innlegg