fbpx

Victoria Beckham SS15

Er ekki viðeigandi að sitja inni á skrifstofu – horfa útum gluggann á þetta ógeðslega veður, haldandi á rjúkandi heitum kaffibolla og skoða sumartísku næsta árs? Mér finnst það ;)

Þó ég hafi aldrei náð að fara jafn vel yfir sýningarnar eins og ég gerði hérna áður fyr þá finnst mér fátt jafn skemmtilegra og þegar ég hef tíma til að pæla í sýningunum og klæðunum. Ein af mínum uppáhalds Victoria Beckham sýndi á NYFW í gær. Ég heillast alltaf af kvenlega stíl Victoriu sem mér finnst alltaf tímalaus og elegant. Þið sjáið alltaf stíl Victoriu í sýningunum hennar án þess þó að flíkurnar séu alltaf eins ár eftir ár og þær eru alltaf hennar en ekki eins og einhvers annars.

Fyrir næsta sumar er Victoria í mjúkum litum og léttum flíkum. Náttfatasniðið sem var mjög áberandi síðasta sumar laumast hér inní línuna og mjúk blómaprint sem minna helst á eitthvað frá 8. áratug síðustu aldar blandast saman við einfaldari liti. Ég er persónulega alveg sjúk í dimmrauða litinn – þessi sandlitur hentar mér engan vegin en ég er samt skotin í honum… Támjóu, lágbotna ökklastígvélin finnst mér svo æpa nafn mitt og ég myndi glöð bæta við pari í safnið :)

Detailarnir í flíkunum heilla mest – beltið í mittinu, army fílingurinn á tölunum og vösunum – hér sjáið þið mín uppáhalds lúkk úr sýningunni.

AA2X0009 AA2X0043 AA2X0060 AA2X0090 AA2X0167 AA2X0214 AA2X0250 AA2X0265 AA2X0320 AA2X0359 AA2X0396 AA2X0418 AA2X0464 AA2X0473 AA2X0492 AA2X0536 AA2X0563

Ljósmyndari: Gianni Pucci / Indigitalimages.com

Konan er auðvitað bara snillingur – hún var alltof lengi að reyna við þennan söngbransa – hefði átt að snúa sér að tískunni fyrir löngu. En Victoria er ein af mínum allra uppáhalds í þessum bransa – þvílíkur snillingur!

EH

Video: haustið frá Lancome

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Margrét Auður

    8. September 2014

    Margt ansi gott þarna .. en ég næ ekki alveg stóru herraskónum … samt með mjög mög breiðan skósmekk

    • Reykjavík Fashion Journal

      9. September 2014

      haha ég er alveg að fýla þá – ég er reyndar með pínulitla fætur svo það er lítil hætta á að ég yrði eins og trúður í þessum :D

  2. Halla

    8. September 2014

    Það má með sanni segja að frú Beckham er flott. Falleg föt hjá henni að a.m.k. sem þú sýnir hér. Eru skórnir eitthvað frekar herra- en dömuskór?. Ekki að mínu mati…..