fbpx

Trendstelpur í Hörpu

Lífið MittMyndir

Við mættum nokkrar skvísur saman í Hörpu í gær á Vefverðlaun SVEF sem fóru fram í gær. Trendnet var tilnefnd í flokki bestu bloggsíðanna en því miður hlutum við ekki verðlaunin í ár en við vorum allar vissar um að við hefðum verið í 2. sæti!

Verðlaunin voru veitt fyrir árið 2012 og miðað við að síðan opnaði um miðjan ágúst þá vorum við sammála um að þetta væri frábær árangur og við ætlum okkur að taka verðlaunin heim að ári.

Eins og þið sjáið hér á myndinni fyrir neðan þá rættist einn af mínum heitustu draumum að koma fram á sviðinu í Hörpu ég var ekki enn búin að ná að átta mig á því hvað í ósköpunum ég gæti gert til að ná því markmiði svo ég er þakklát SVEF fyrir að hafa tekið þetta bara í sínar hendur.

Við urðum auðvitað að skella í eina hópmynd….
… og svo eina svona öðruvísi – svipurinn á Andreu ber af!Við söknuðum þeirra sem vantaði en skáluðum í lokin fyrir okkur öllum.

Þessi færsla er ekki bara frá mér heldur okkur öllum 6 – ákváðum að ein myndi birta myndir svo síðan fylltist ekki af sömu færslunni;)

Jason Wu FW13

Skrifa Innlegg

6 Skilaboð

  1. Rakel

    9. February 2013

    Svo miklar pæjur allar saman!
    Frábær árangur, þið takið þetta á næsta ári, ekki spurning :)

  2. Pattra's

    10. February 2013

    SNILLAR Xx