fbpx

#trendneglur – fyrstu vinningshafar

Maybellineneglur

Ég er svo heppin að fá að vera fyrst til að velja mínar 5 uppáhalds myndir í #trendneglur leiknum sem við erum að gera í með Maybelline. Mér finnst ótrúlega gaman að sjá hvað er mikil fjökbreytni og alls konar neglur – margar ykkar eru líka greinilega duglegar að skipta reglulega um naglakk.

Við ætlum samtals að velja 20 myndir sem fá smá glaðning frá Maybelline og loks velja eina mynd og fær eigandi hennar 50.000kr vöruúttekt frá Maybelline. Ég væri alveg til í hana – ekki það að ég eigi ekki nóg af snyrtivörum en það voru að koma svo flottar nýjungar frá merkinu sem ég er spennt að segja ykkur frá. En hér sjáið þið mínar uppáhalds myndir.Screen Shot 2013-09-13 at 5.02.26 PM Screen Shot 2013-09-13 at 5.03.36 PM Screen Shot 2013-09-13 at 5.05.49 PM Screen Shot 2013-09-13 at 5.06.05 PM Screen Shot 2013-09-13 at 5.06.50 PM

Ég óska eigendum myndanna innilega til hamingju og bið þá um að senda póst á trendnet@trendnet.is með fullu nafni og heimilisfangi svo við getum sent ykkur vinningana. Samtals ætlum við að gefa 20 gjafapakka sem innihalda – Rocket maskarann, Color Show naglalakk, Color Show Polkadots yfirlakk og Express Remover allt frá Maybelline að sjálfsögðu;)

Það er til mikils að vinna svo haldið áfram að merkja ykkar naglalakksmyndir með #trendneglur og @maybellinereykjavik. Fylgist líka með á Facebook síðu Maybelline sem þið finnið HÉR
EH

Tískuvikurnar

Skrifa Innlegg