fbpx

Trend – Tjullpils?

FashionStíllTrend

Mig hefur alltaf langað í fallegt tjullpils þó það hafi kannski slokknað á þeirri löngun í smá tíma þá hefur Taylor Tomasi Hill tekist að kveikja aftur á henni! Þessu dressi klæddist hún í tískuvikunni í París sem kláraðist í síðustu viku.Flott og effortless dress – í kjölfarið fór ég á veraldarvefinn og skoðaði fleiri skvísur í tjullpilsi og nú finnst mér ég nauðsynlegt þurfa að eignast eitt slíkt er þetta kannski bara bull í mér?
Annað sem ég er húkkt á eru Carrie Diaries þættirnir – Sarah Jessica Parker má reyndar ekki lengur vera í háaum hælum er Annasophia Robb bara rétt að hefja feril sinn sem Carrie Bradshaw:)

Kannski er þetta svolítið smástelpulegt… en ég held það fari eftir því í hverju maður klæðist við það. Ég held t.d. að kósý peysa – jafnvel rúllukragapeysa gæti passað vel við svona pils og dregið aðeins niður úr stelpulegheitunum.

EH

Föstudagssamba!

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Jónína Sigrún

    10. March 2013

    mig er einmitt lúmskt farið að langa í tjullpils / ballerínu pils :)