fbpx

Trend: Silfurlitaðir strigaskór

FashionLífið MittNýtt í FataskápnumTrend

Ég eins og svo margir er að fýla strigskó trendið sem er búið að vera í gangi undanfarið – sérstaklega vegna þess að útaf þessu trendi er svo mikið úrval af flottum strigaskóm. Ég í alvörunni er fáránlega spennt fyrir því að þessi klaki og slabb er horfið því mig langar að fara í strigaskó!!

Mig er búið að langa lengi í flotta mettallic strikaskó og í dag fór ég heim úr Kringlunni einu svoleiðis pari ríkari – silfurlitaðir strigaskór eru nú komnir í safnið. Ég held að þessir skór verði flottir við allt – alla vega var ég í öllu svörtu í dag og þeir komu svakalega vel út þegar ég mátaði þá – fullkomnuðu alveg dressið…

Hér sjáið þið mína – ég er búin að bíða sjúklega spennt eftir þeim síðan Elísabet vinkona í Bianco sýndi mér þá fyrir nokkrum vikum svo ég fór beint í dag og reif skónna í stærð 37 skellti mér í þá og ég fann bara já þessa verð ég að eignast svo nú er ég svaðalega hamingjusöm heima hjá mér í silfurlituðum skóm og vona að það komi hiti og bræði þennan klaka burt – erum við ekki allar sammála því;)

silfur

Þið fáið að sjá dressfærslu með þessum von bráðar – líklega bara um eða eftir helgi, hvort sem myndirnar verða teknar hér inni eða bara hér beint fyrir utan haha:)

Ég held það fari ekki framhjá neinum að Bianco er mín uppáhalds skóbúð – en eigum við ekki allar okkar uppáhalds. Ég fæ alla vega alltaf frábæra þjónustu og svo góða skó – ég mæli með því að þið setjið like á Facebook síðu búðarinnar. Fyrir áhugasamar þá kosta þessir 14.990kr og eru líka til gylltir.

BIANCO ICELAND

EH

Raki í vasanum...

Skrifa Innlegg