Þó nokkrar bloggsystur mínar sem eru líka undir Trendnet eru búnar að skrifa um marmaratrendin í innanhúshönnun. Þetta trend ætlar greinilega að vera mjög vinsælt og því ekki skrítið að fleiri geirar tískuheimsins sæki í það.
Nýlega komu glæsilegir augnskuggar í Make Up Store og ég kíkti á Steinunni mína í Smáralindinni í gær til að skoða þá betur – ég varð ekki fyrir vonbrigðum og hlakka mikið til að prófa þá sjálf!
Ég á þennan hér fyrir ofan en hann kom í einni af línunum í Make Up Store síðasta haust – virkilega skemmtilegur litur og ég þarf að bæta fleirum í safnið hjá mér.
Hér sjáið þið nokkra liti. Það er auðvitað hægt að nota þá þannig að þið blandið litinum saman en svo getið þið líka notað bara einn og einn lit. Þá eruð þið kannski með flatan augnskuggapensil (til hellingur í Make Up Store) til að ná litunum upp og bera á augnlokið og nota svo kannski annan bursta til að blanda litunum saman.
Með þessum augnskuggum má klárlega segja að þið eruð að fá fleiri augnskugga fyrir minni pening því eins og þið sjáið þá eru sirka 4 litir í hverjum augnskugga ;)
Hér fyrir neðan sjáið þið nokkrar nýjar vörur frá Make Up Store m.a. augnskugga, skemmtilegan gloss og nýja maskarann sem
Ég fékk svo leyfi hjá henni Steinunni Eddu verslunarstjóra Make Up Store til að birta tvö förðunarlúkk sem hún hefur gert í vinnunni með marmaraaugnskuggunum – mjög skemmtilegt hjá henni. Virkilega fallegar augnfarðanir og fallegt hvernig hún gerir sérstaklega á neðri myndinni með tveimur mismunandi litum. Notar líka hárrétta litasamsetningu til að gera augun sín svona fallega blá :)
Skv. Facebooksíðu Make Up Store eru skuggarnir á 3990 ;)
Mæli með heimsókn í Smáralindina!
EH
Skrifa Innlegg