Ömmuspennur eða feluspennur þarf alls ekkert að fela alltaf eins og þessar myndir sem ég er búin að sanka að mér á Pinterest sýna. Mér finnst koma mjög skemmtilega út að raða ömmuspennum í form og sýna þær:)
Ef þið eruð með sleipt hár og spennur renna auðveldlega úr hárinu ykkar þá er sniðugt að spreyja þær með þurrsjampói áður en þið setjið þær í hárið þá renna þær síður til.
Ég þarf að prófa þetta við fyrsta tækifæri – falleg leið til að taka hárið frá andlitinu í sumar. Mögulega hártrend sumarsins míns;)
EH
Skrifa Innlegg