fbpx

Talk That Talk

Ég Mæli MeðLúkkMACmakeupMakeup ArtistNýtt í snyrtibuddunni minniVarir

Þið verðið að afsaka myndaspammið sem er í þessari færslu – ég er bara svo ástfangin af nýja varalitnum mínum að það nær engri átt!

talkthattalk talkthattalk2 talkthattalk3 talkthattalk4 talkthattalk5Myndirnar eru teknar á Canon EOS M

Þetta er varaliturinn Talk That Talk úr RiRi <3 MAC línunni. Varaliturinn seldist uppá fyrstu 5 mínútunum þegar línan fór í sölu í MAC versluninni það var aleg magnað að fylgjast með því. Um leið og liturinn seldist upp spurðist það út á meðal annarra viðskiptavina sem urðu fyrir miklum vonbrigðum. Ég skil það vel ég hefði verið mega svekkt að missa af þessum æðislega haustlit sem er með mattri áferð.

Ég lenti í smá umræðum við aðra makeup fíkla á Facebook um þessa línu en línan fékk ekki alltof góða dóma inná síðunni Temptalia – og þar á meðal þessi varalitur. Það sem hún gagnrýndi m.a. var ásetningin – en það tekur sinn tíma að setja litinn á hann er mattur og það þarf aðeins að byggja vel upp þekjuna og passa vel uppá að liturinn sjálfur sé jafn. En mér finnst þetta reyndar gilda um alla svona sterka og dökka varaliti. En það hjálpar að sjálfsögðu alltaf að vera með varablýant undir ;)

Þessi verður mikið notaður á næstunni – hiklaust!

EH

Ilmhús

Skrifa Innlegg

5 Skilaboð

  1. Sigríður Tinna

    4. November 2013

    Ég verð græn af öfund að sjá þessar myndir! Hann er geeðveikur!

  2. Sandra

    4. November 2013

    Koma þeir ekkert aftur?