fbpx

Ilmhús

Ég Mæli MeðFallegtIlmirShop

1174891_296503183823857_1512142847_nÉg leit við inní Madison Ilmhús í Aðalstræti núna í dag. Ég hef lengi ætlað að gera mér ferð í þessa verslun og lét loksins verða af því. Ofboðslega skemmtileg sérverslun með vörur sem ég er mjög spennt fyrir að prófa og kynna mér betur.

Ég er búin að mæla mér mót við verslunina og starfsmenn hennar seinna í vikunni. Þá ætla ég að fá að vita meira svo ég geti sagt ykkur betur frá vörunum og conceptinu. Ég verð að sjálfsögðu vopnuð myndavélinni fínu til að sýna ykkur allt það skemmtilega og nýja sem er í boði fyrir okkur þar.

Hér sjáið þið nokkrar myndir úr versluninni sem ég fékk að láni á Facebook síðu verslunarinnar sem þið finnið HÉR.

601064_326053367535505_1340509331_n 1424411_326063344201174_665924916_n 1380256_320881624719346_123560219_n 557214_319026244904884_621438207_n 1383481_320356801438495_961551868_nHlakka til að sýna ykkur meira og segja ykkur betur frá:)

EH

Fullkomin vetrarkápa - JÖR

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Adda

    5. November 2013

    ok…ertu að segja mér að þetta séu Aesop snyrtivörurnar? Fást þær hér og ég vissi ekki af því?!