fbpx

Sjúkt naglalakk!

FallegtFræga FólkiðneglurNýjungar í SnyrtivöruheiminumNýtt í snyrtibuddunni minniOPI

Eins og mig grunaði þá er þetta lakk úr OPI línunni hennar Gwen Stefani tryllt!

metallic

Push & Shove liturinn er þéttur silfraður litur alveg sjúkur og það er rosalega flott að sjá hvernig liturinn breytist og jafnar sig eftir því sem hann þornar á nöglunum. Með lakkinu fylgir mini útgáfa af Lay Down That Base undirlakki frá OPI en það er nauðsynlegt að nota það undir. Ef undirlakkið er ekki sett á þá verður liturinn dáldið götóttur og það þarf fleiri umferðir til að byggja hann upp. Næst set ég tvær umferðir af litnum sjálfum. Ekki setja yfirlakk yfir lakkið það getur eyðilagt áferðina.

metallic3

Þetta lakk mun ég nota mikið. Ég er ánægð með að það sé silfrað því ég er ekki alveg viss um að ég myndi nota gyllt jafn mikið. Svo er trúlofunarhringurinn minn silfraður svo lakkið passar rosalega vel við hann.

Ég á von á nokkrum skvísum til mín í dag í farðanir fyrir árshátíð og ég efast ekki um að einhverjar þeirra eigi eftir að falla fyrir þessu lakki :)

metallic2

Hér sjáið þið svo hina litina úr línunni sem ég sýni ykkur við fyrsta tækifæri.

metallic4Push & Shove – I Sing In Color – 4 In The Morning – Love.Angel.Music.Baby

Mér líður eiginlega bara eins og ég sé með skartgripi á nöglunum – ég er dáldið spennt að sjá hvernig það fer svo af. En með fjólubláa naglalakkaeyðinum frá OPI þá verður það eflaust ekkert mál.

EH

 

Svartar Varir...

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

    • Reykjavík Fashion Journal

      11. January 2014

      Já hún ætti að vera komin eða alveg að detta í búðir. Venjulega mæta línurnar fyrst í eins og Kringluna og Smáralind. OPI færðu t.d í Hagkaupum og Lyfju…. o.s.frv ;)

  1. Sóley

    11. January 2014

    Pantaði mér Push and shove af Ebay og elska það!! Er einmitt með það á mér í dag :)