Eitt af videounum sem ég tók upp í gær var fyrir nýjan maskara frá L’Oreal. Ég gerði þetta líka síðast þegar það kom nýr maskari frá merkinu HÉR – og þar sem það vakti mikla lukku skellti ég í þetta video. Á myndinni hér fyrir neðan sjáið þið útkomuna á augnhárunum mínum ásamt maskaranum, þar fyrir neðan sjáið þið svo videoið sjálft og loks neðst getið þið komist að því hvernig þið gætuð eignast þennan flotta maskara ;)
Í myndbandinu hér fyrir neðan segi ég almennilega frá maskaranum, hver pælingin á bakvið hann er og hvaðan innblásturinn kemur. Svo sjáið þið líka hvernig ég nota hann en umfang augnháranna eykst ekkert smá mikið eftir bara eina umferð og svo ennþá meira eftir tvær umferðir!
Hér er svo mynd af því hver munurinn var á augnhárunum mínum – öðru megin er ég ekki með neinn maskara en hinum megin er ég með tvær umferðir. Ég nota aldrei augnhárabrettara þegar ég sýni ykkur maskara en ef þið gerið það þá fáið þið ábyggilega svakaleg augnhár með þessum maskara!
og loks lokaútkoman….!Miss Manga maskarinn frá L’Oreal er nú kominn í verslanir og fæst t.d. í Hagkaup, Lyfju og Lyf og Heilsu og kostar um 2800kr sem er mjög gott verð að mínu mati.
En ég ætla að gera enn betur og gefa einum heppnum lesanda Miss Manga maskarann. Það eina sem þarf að gera er að smella eins og einu like á þessa færslu og senda svo athugasemd með nafni við hana – ég dreg svo í fyrramálið :)
EH
Skrifa Innlegg