fbpx

Nýir í skóskápinn!

FallegtFashionLífið MittNýtt í FataskápnumShop

Ég þoli ekki þegar ég sé eftir því að hafa ekki keypt eitthvað. Það kom fyrir mig eftir Kaupmannahafnarferðina. Ég rölti nú í gegnum Strikið nokkrum sinnum í ferðinni, þar sem ég rata nú ekki meira en þangað. Á gönguferðum mínum dáðist ég reglulega af skóm í glugga Bianco skóbúðarinnar og ég ætlaði alltaf að fara inn og máta þá en ég fann alltaf einhverja ástæðu til að gera það ekki. Hvort sem það var af því ég var með svo mikið af dóti, eða ég nennti ekki að bera þá eða ég hafði bara ekki tíma. Alla vega þá fór ég aldrei þangað inn og mátaði aldrei þessa fallegu skó. Ég var nú bara búin að ákveða að mig greinilega langaði ekki svo mikið í þá – en það breyttist þegar ég kom heim og gat bara ekki hætt að hugsa um þessa blessuðu skó.

Fyrir nokkrum viku rakst ég á mynd á Facebooksíðu Bianco á Íslandi af skóm sem voru nánst eins og fallegu skórnir sem ég sá í Kaupmannahöfn, bara örlítið hærri upp. Svo ég ákvaða að senda þeim póst og athuga hvort mögulega mínir skór væru til eða væru væntanlegir. Þá voru þeir hvorki til né væntnalegir, en í lok síðustu viku fékk ég svo póst frá þeim þar sem mér var svo tilkynnt að fallegu draumaskórnir væru komnir! Ég var ekkert lítið ánægð og þótti mjög vænt um að ég væri látin vita, ég fór á mánudaginn og mátaði loksins skónna sem voru enn fallegri en mig minnti og ég gat ekki annað en tekið þá heim með mér.

Hér sjáið þið nýju fallegu skónna mína…

skór3 skór2 skórÉg er nú þegar búin að nota þá töluvert og er svo ánægð með þá! Þeir eru dáldið rúmir en ég er annað hvort í stærð 37 eða 36 og ég tók minni stærðina í þessum. Þeir voru alveg þéttir um löppina en eftir að ég var búin að vera í þeim í nokkra tíma voru þeir orðnir bæði mýkri og rýmri og mjög þæginlegir.

Fyrir áhugasama þá kosta þessir fallegu skór 12990kr og fást í Bianco í Kringlunni.

EH

Kate Hudson í Nýju Lífi

Skrifa Innlegg

7 Skilaboð

  1. Bára

    6. March 2014

    SHIT !! Þeir eru geðveikir <3

  2. Andrea

    6. March 2014

    Keypti mér einmitt þessa sömu skó eftir að hafa séð mynd á instagram síðu Bianco…sé sko ekki eftir því, þeir eru æðislegir :)
    Allar stelpurnar í vinnuni dauðöfunda mig af þeim :)

  3. Íris

    6. March 2014

    Var að kaupa mér svona. Er svo skotinn í þeim :)

  4. Ragnhildur Birgisdóttir

    6. March 2014

    Ó vá! Þessir eru æði!

  5. Aldís

    7. March 2014

    Þeir eru ÆÐI !!! var einmitt búin að sjá þá á netinu, sjúklega flottir !!!

    Ætla að kippa þeim með mér heim næst, þegar ég á leið í bæjinn ** ef þeir verða ekki búnir <3

  6. Aldís

    7. March 2014

    ps. eru þeir litlir eða stórir í nr?