fbpx

Robert Pattinson fyrir Dior – loksins!

DiorFræga FólkiðIlmir

Margar konur hafa eflaust beðið komu þessarar auglýsingar með mikilli eftirvæntingu – það hef ég alla vega enda mikill Dior aðdáandi. Ég er að fýla þessa auglýsingu í botn – hef svo sem aldrei verið neitt sérstaklega mikill Edward aðdáandi miklu frekar Cedric aðdáandi.

Þegar orðrómurinn fór af stað um það að Robert Pattinson yrði nýtt andlit Dior herrailmanna hófust sögusagnir um að nýr ilmur væri væntanlegur. Svo reyndist ekki heldur eru þeir hjá Dior einungis að vekja meiri athygli á þessum klassíska ilmi með ungu og frískandi andliti Roberts.

Það verða eflaust margar konur sem munu nú fara og fjárfesta í þessum ilmi útum allan heim. Fyrir mennina sína eða bara sig sjálfar.

Hér er svo stutt viðtal við Robert Pattinsons um gerð auglýsingarinnar og smá innsýn inní það sem fór fram á bakvið tjöldin við gerð auglýsingarinnar.

Ég verð nú að viðurkenna að hann Robert er ansi heillandi maður og virðist vera frekar svona „down to earth týpa“ – ekki það að ég þekki hann persónulega ;)

Hvernig líst ykkur á þessa herferð?

EH

Að fjarlægja glimmer naglalakk

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Elísabet Gunnars

    5. September 2013

    Alltaf verið skotin í þessum !