fbpx

Red Cherry augnhár

AuguÉg Mæli MeðFashionmakeupMakeup ArtistNýtt í snyrtibuddunni minni

Nú er daman alveg dottin í gervi augnhárin eins og þegar ég var uppá mitt besta á Verslóárunum mínum:) Ég fékk sent þessi virkilega fallegu og vönduðu augnhár af tegundinni Red Cherry. Þau eins og augnhárin frá House of Lashes sem ég skrifaði um um daginn eru 100 mennsk hár – cruelty free að sjálfsögðu;)

Ég er ekki enn búin að hafa tækifæri til að prófa þau en ég ætla að reyna að búa það til í þessari viku. En ég varð bara að segja ykkur frá þeim því þau eru á ótrúlega góðu verði – 1000 kr stykkið! Augnhárin fáið þið HÉR.

Ég fékk þrjú af vinsælustu augnhárunum…

redcherry4 redcherry3

#43 – þessi eru kölluð Kim Kardashian augnhárin en skvísan notar þessi augnhár víst sjálf. Þessi gefa ykkar augnhárum aukna þéttingu og þykkt. Þessi henta vel við ýkta augnförðun – mjög dökka þar sem augnhárin þurfa smá hjálp til að standa út.

redcherry2

#217 – Marylin augnhárin. Þessi gefa fallega þykkt og ég myndi mæla með þessum við hvaða augnförðun sem er ég held þau séu akkurat millibilið ekki of náttúruleg og ekki of ýkt.

redcherry

#747S – þetta eru þau náttúrulegustu og mér persónulega finnst þessi pörfekt fyrir brúðir. Þessi ýkja augnhárin sem eru fyrir og gefa augunum fallega umgjörð. Þessi eru fyrst á testlistanum hjá mér…:)

redcherry5

Það fyrsta sem ég tók eftir við augnhárin er röndin sem límist við okkar augnlok. Hún er þunn og glær – þannig vil ég hafa þau. Þá eru þau meðfærileg, límast vel og standa ekki út. En ef kanturinn er of breiður er hætta á því. Því þynnri sem kanturinn er því betri. Hann er litlaus sem er líka kostur því þá lúkkar ekki eins og þið séuð með alltof þykka eyelinerlínu – sem sleppur kannski þegar við erum með mikla augnförðun en gerir það ekki þegar við erum náttúrulegar.

Lúkka vel finnst ykkur ekki?

EH

 

Snyrtibuddan mín í apríl!

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

3 Skilaboð

  1. Eva

    8. May 2014

    Alvöru hár? really? Af hverjum kemur hárið, er þetta hár af höfði eða…? jæks!

    • frábær spurning – er búin að pæla mikið í þessu sjálf síðan ég pantaði mér House of Lashes augnhárin sem eru einmitt eins. Augnhár sem eru 100% ekta eru þó mun flottari en hin með gervihárunum (af þeim sem ég hef prófað alla vega). Ég hvet þig til að spurjast fyrir um á síðunni sem selur augnhárin ef þú vilt vita meira um hárin :)