fbpx

Póstur frá Chanel

ChanelNýjungar í Snyrtivöruheiminum

Í morgun beið mín tölvupóstur frá höfuðstöðvum Chanel í Danmörku. Ég get ekki sagt annað en að þessi póstur hafi gert daginn minn. Myglaða ég fékk breitt bros yfir andlitið og held mjög sátt inní Verslunarmannahelgina!

Í póstinum var mér sagt frá því að nýjasta snyrtivöruherferð merksisin væri að fara í gang. Herferðin er sú fyrsta sem nýjasta andlit merkisins, Diane Kruger, situr fyrir í. Í dag birtist fyrsti hlutur herferðarinnar þar sem Diane situr í sófa í París og tala um fegurð. Næstu daga birtast svo fleiri teaserar og innan skamms fáum við vonandi að vita allt um þessa nýju snyrtivöru frá merkinu. HÉR getið þið fylgst með herferðinni.

Eftir helgi sný ég svo aftur hingað af fullum krafti. Er með fullt af skemmtilegu efni þar á meðal sýnikennslumyndbönd með tali!

Njótið helgarinnar:)

EH

Alber Elbaz í Duty Free

Skrifa Innlegg