fbpx

og Kelly Yum Yum fær…

FallegtMACVarir

Ef ég yrði spurð hvað ég væri mest þakklát fyrir í lífinu þá veit ég að ég yrði ekki lengi að hugsa mig um – fjöldkyldan, heilsan mín og minna og lesendurnir á síðunni – þetta er topp listinn minn. Takk fyrir allar dásamlega fallegu kveðjurnar sem þið senduð mér bæði hér á síðunni og á Facebook hjá mér. Ég á varla til orð til að lýsa hversu mikið orðin ykkar yljuðu mér um hjartarætur. Ég er búin að lesa hverja einu og einustu athugasemd og nú vantar mig bara tíma til að svara hverri þeirra.

Því miður þá hef ég bara einn varalit að gefa og það er þessi dásamlega fallegi varalitur Kelly Yum Yum sem er svipaður einum vinsælasta MAC varalitnum Candy Yum Yum en hann er aðeins blárri þó.

Þar sem það rigndi ekki bara inn athugasemdum hér á síðunni heldur líka Facebook síðunni taldi ég þær allar saman og dró úr heildarfjöldanum. Random number generator hjálpaði mér svo að velja tölu af algjöru handahófi og ég taldi mig í gegnum athugasemdirnar þangað til ég var komin að athugasemd nr. 75 – nafn sigurvegarans sjáið þið hér neðar.Screen Shot 2014-09-09 at 8.57.08 AM Screen Shot 2014-09-09 at 8.58.32 AM

Til hamingju Snjólaug Vala og takk fyrir fallega kveðju! Þú mátt endilega senda á mig línu á ernahrund(hjá)trendnet.is til að fá upplýsingar um hvar þú getur nálgast vinninginn hjá mér :)

Enn og aftur takk kærlega fyrir allar þessar dásamlegu athugasemdir – ég held að ég eigi ekki nógu mörg orð í orðaforðanum til að koma þakklæti mínu á framfæri. Öll orðin ykkar yljuðu mér um hjartarætur og vitið þið að það væri bara ábyggilega ekkert sérstaklega gaman að vera með svona blogg nema maður væri með jafn dásamlega lesendur eins og þið eruð <3

knús og kram til ykkar allra – lofa að vera duglegri að gefa svona exsclusive vörur í framtíðinni!

EH

 

Victoria Beckham SS15

Skrifa Innlegg