fbpx

Nýtt í Snyrtibuddunni

Lífið MittneglurNýtt í snyrtibuddunni minniTrend

Nýjasta snyrtivaran mín er þetta fallega OPI naglalakk úr Oz línunni frá merkinu. Lakkið er með sandáferð svo yfirborð naglanna er hrjúft og matt. Myndin er tekin á þriðjudaginn og neglurnar mínar líta enn svona út, fáránlega fín ending. Lakkið er dökkbrúnt með gylltri glimmer áferð – og á næstu vikum mætir ný lína hjá OPI með bara svona lökkum og þar er meðal annars eitt skjannahvítt sem er komið á minn óskalista. Segi betur frá henni eftir páska.

Ég vona að þið eigið ótrúlega góða helgi framundan og náið að slaka vel á með fjölskyldunum ykkar. Minni verður eytt í faðmi strákanna minna og svo bíður mín ofboðslega spennandi verkefni – skattskýrslan…. Gleðilega Páska <3

EH

Náðu Lúkkinu

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Ása í Ameríku

    30. March 2013

    Eina sem ég get kvartað undan er böggið að ná þessu af :)

    • Já það er reyndar rétt – sem er kostur og galli;) Ég reyndar fékk mér eh ofur hreinsi frá OPI til að hreinsa þetta af og það var mun auðveldara en að nota bara venjulegan;)