fbpx

Náðu Lúkkinu

LúkkmakeupMakeup TipsNáðu Lúkkinu

Þegar ég var uppá mitt besta í kvöldlífi Reykjavíkurborgar þá var kvöldið fyrir Skírnardag vinsælt til að sletta aðeins úr klaufunum. Ef þið eruð hugmyndasnauðar fyrir makeup lúkk kvöldsins þá er hér hugmynd frá mér…

  • Blandið smá fljótandi highlighter saman við farðann ykkar til að fá þessa flottu ljómandi áferð á húðina.
  • Setjið rauðan kremaðan kinnalit á epli kinnanna.
  • Sanseraður bronsaugnkuggi – setjið hann yfir allt augnlokið og meðfram neðri augnhárunum.
  • Setjið eyeliner meðfram efri augnhárunum. Breikkið línuna smám saman eftir því sem þið færið ykkur lengra inná augnlokið. Setjið svo smá spíss á endann.
  • Setjið kolsvartan maskara á augnhárin og nóg af honum – sérstaklega á neðri augnhárin.
  • Bætið smá fljótandi highlighter í kringum varirnar og setjið svo léttan glossmikinn eldrauðan varalit á varirnar.

Góða skemmtun í kvöld – dansið fyrir mig!

EH

Regnboginn

Skrifa Innlegg