Nýjasta snyrtivaran mín er þetta fallega OPI naglalakk úr Oz línunni frá merkinu. Lakkið er með sandáferð svo yfirborð naglanna er hrjúft og matt. Myndin er tekin á þriðjudaginn og neglurnar mínar líta enn svona út, fáránlega fín ending. Lakkið er dökkbrúnt með gylltri glimmer áferð – og á næstu vikum mætir ný lína hjá OPI með bara svona lökkum og þar er meðal annars eitt skjannahvítt sem er komið á minn óskalista. Segi betur frá henni eftir páska.
Ég vona að þið eigið ótrúlega góða helgi framundan og náið að slaka vel á með fjölskyldunum ykkar. Minni verður eytt í faðmi strákanna minna og svo bíður mín ofboðslega spennandi verkefni – skattskýrslan…. Gleðilega Páska <3
EH
Skrifa Innlegg