fbpx

Nýjustu förðunarvöru netkaupin…

Ég Mæli MeðmakeupNetverslanirNýtt í snyrtibuddunni minni

Ég var rosalega dugleg að lesa mér til um spennandi förðunarvörur á meðan ég lá inni á spítala og ég freistaðist eitt kvöldið þegar ég lá andvaka og pantaði nokkrar girnilegar vörur sem eru nú komnar til mín og ég má til með að deila þeim með ykkur. Þetta eru vörur sem þið getið líka nálgast – þ.e. fyrir utan eina þeirra – í gegnum vefverslunina nordstrom.com sem sendir til Íslands ;)

netkaup6

Vörurnar sem ég splæsti í þetta kvöldið – allar komnar – en ef þið fylgist með mér á snappinu ernahrundrfj þá ættuð þið að vita af þeim nú þegar!

netkaup3

Þegar ég sá fyrst myndir af nýju Smoky Naked pallettunni frá Urban Decay vissi ég að ég yrði að eignast hana. Sambland af 12 æðislegum litum og palletta sem er svo ólík hinum þremur. Sjálf hef ég notað þær sem ég á fyrir nr. 2 og nr. 3 mikið og hlakka til að blanda þessum skemmtilegu litum saman. Möttu litirnir sem þið sjáið hægra megin í pallettunni finnst mér sérstaklega flottir og þeir dekkri eru tilvaldir í mótun á augnlokunum og þeir ljósu fullkomna reykáferð hinna litanna – ég þarf að kenna ykkur það trix!

netkaup9

Með pallettunni fylgdi smá plagg þar sem fjórar mismunandi útgáfur af smoky augnförðunum eru sýndar og kenndar – hér sjáið þið tvær þeirra.

netkaup8

Liturinn Anna í Audacious varalitunum frá Nars. Mér fannst þessi litur eitthvað svo klassískur og tímalaus ég varð bara að bæta honum í safnið. Ég á einn nú þegar frá merkinu og hann er virkilega góður – mæli með!

netkaup

Hourglass ljómapallettan er ein af þessum förðunarvörum sem þið ættuð nú kannski að kannast við. Þessi þykir alveg sérstaklega góð og ég hlakka bara til að fá að prófa hana sjálf eftir að vera búin að heyra og lesa mikil lof!

netkaup2

Svo að lokum er það ljómandi fallegt púður sem Jaclyn Hill hannaði fyrir merkið BECCA. Jaclyn Hill er einn allra vinsælasti förðunarvloggarinn á Youtube og hún hannaði nýjan og einstakan lit af vinsælasta highlighter merkisins. Púðrið var eingöngu framleitt í takmörkuðu upplagi og er meira og minna uppselt. Ég ákvað að taka séns á ebay og splæsti í púður og fékk ekta vöru sem er nú ekki alltaf raunin með ebay ;) Ef þið viljið taka sénsinn á ebay passið þá uppá að verðið sé raunhæft – ef það er of gott til að vera satt og í engu samhengi við raunvirði vörunnar er hún líklegast ekki ekta. Ég hlakka mikið til að leika mér með þetta púður við fyrsta tækifæri.

En ég mæli algjörlega með að versla í gegnum nordstrom.com – virkilega góð og hröð þjónusta og gríðarlegt úrval af snyrti- og förðunarvörum. Passið þó að ekki allar vörur eru sendar til Íslands – þess vegna verð ég að leita annarra leiða til að fá Oliviu Palermo fyrir Ciaté lökkin til mín ;)

EH

Vörurnar sem ég skrifa um hér keypti ég sjálf. Það hefur þó engin áhrif á álit mitt á vörunum og eins og alltaf veiti ég hreinskilið álit. 

Einfaldur kvöldmatur sem bragðast svo vel!

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

3 Skilaboð

  1. Guðrún

    13. August 2015

    Flottar og spennandi vörur! Hvernig var það með tollinn og þarf almennt að greiða mikið af svona förðunarvörum?

    • Reykjavík Fashion Journal

      13. August 2015

      Ég greiddi skatt af vörunum sem ég keypti inná nordstrom.com bara þar svo kom sendingin með DHL og ég greiddi ekkert þar þegar ég sótti því ég var í raun búin að því :) En með BECCA púðrið greiði ég 10% toll, 550kr tollvinnslugjald og 24% VSK auðvitað :)

  2. Hrefna Rún

    15. August 2015

    Fáum við sýnikennslu? :)