fbpx

Mína Mús

Ég Mæli MeðneglurOPITrend

Ekki fyrir allt svo löngu síðan kom út ný naglalakkalína frá OPI sem var innblásin af Mínu Mús. Ég fékk að velja mér eitt lakk úr línunni og mig hafði langað svo lengi í lakk með stórum glimmerögnum. Lakkið heitir Minnie Style og glimmerið er í Mínu mús litunum.

Ég ákvað að prófa að setja það yfir alls konar mismunandi liti til að sjá hvernig það kemur út. Að nota doppótt yfirlökk er búið að vera áberandi í naglalakkatískunni undanfarið og það heldur áfram í haust og vetur. Mér finnst þetta skemmtilegt trend og getur lífgað uppá látlausa liti!

Hér sjáið þið svo aðra liti sem eru í boði í þessari skemmtilegu línu:Glimmerið er í glæru lakki og það er auðvelt að stjórna magninu á glimmerinu sem kemur á neglurnar, fyrst doppa ég bara yfir nöglina eins miklu glimmeri og ég vil hafa og svo þegar það er þornað þá set ég eina umferð af lakkinu eða glæru yfirlakki yfir.

OPI kemur reglulega með skemmtilegar naglakkalínur og ég hlakka til að sjá hvað er næst á dagskrá hjá þeim:)

EH

Postulínsfiskur frá Hring eftir Hring

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Hildur

    17. July 2013

    Myndin hér fyrir ofan hjá þér er af gömlu Mínu línunni sem kom í fyrra. Lakkið lengst til hægri, þetta bleika með hjartalaga glimmerinu, er ekki til núna. Mér fannst einmitt svo ófrumlegt hjá OPI að koma með Mínu-lökk aftur, því þau voru sem sagt með þetta í fyrra. Sú lína var samt frábær og lökkin í nýju línunni eru líka flott, svo það er ekkert að þessu ;)

    • haha ég hugsaði einmitt þegar þessi mynd kom upp í google hjá þeim hvort þau hefðu ekki verið 5 lökkin;) Sé það núna og skipti um mynd, takk kærlega fyrir ábendinguna:D