fbpx

Mæðgur

Annað DressFashionÍslensk HönnunLífið MittLúkkVarirYSL

Við mæðgurnar áttum saman fullkomið Laugardagskvöld um helgina. Dagurinn minn byrjaði í kynningum fyrir Shiseido í Hagkaup Smáralind og endaði á fallegustu jólatónleikum sem ég hef farið á.

Undanfarin ár höfum við mamma farið á jólatónleika, í fyrra voru það Frostrósir Klassík og þar áður Frostrósir. Í ár hófst kvöldið okkar með kvöldverði á Saffran í Kópavoginum, svo kíktum við í kaffibolla í Smáralind og loks lá leið okkar á jólatónleika systkinanna KK og Ellenar Kristjáns í Salnum. Þetta voru mjög lágstemmdir tónleikar svona miðað við geðveikina sem er á Frostrósum alla vega. Tónleikarnir voru mjög hátíðlegir og ég var með gæsahúð allan tímann. Ég veit ekki hvort þau eiga einhverja tónleika eftir en ef ekki þá mæli ég með þeim á næsta ári.

mæðgur3

Við mæðgur vorum að sjálfsögðu – eins og mig grunaði – með sama varalitinn frá YSL, Rouge Pour Couture nr. 54 – sjá meira HÉR. Við þykjum mjög líkar og ég veit ekki hversu oft ég hef lent í því að vera stoppuð úta götu af æskuvinkonum móður minnar eða bara almennt af fólki sem þekkir hana sem bara sér að við erum mæðgur og biður mig að skila kveðju til hennar. Ég sé þetta kannski ekki beint sjálf – hvað segið þið erum við líkar? ;)

mæðgur2 mæðgur

Ég klæddist:

Kápa: JÖR (já ég fór að ykkar ráðum og fékk mér hana)
Kjóll: Rokk og Rósir
Kimono: AndreA Boutique
Sokkabuxur: Shock Up 60 den frá Oroblu
Skór: Vagabond – skór.is

Ég var að eignast kápuna – um leið og ég mátaði hana aftur þá vissi ég að ég myndi alltaf sjá eftir því ef ég myndi ekki fá mér hana. Svo finnst mér bara fínt að borga sjálfri mér fyrir Reykjavík Makeup Journal með fötum – sem eigandi og starfsmaður finnst mér það snilld! Ég er svo ánægð með kaupin og ég hef notað hana á hverjum einasta degi síðan ég fékk hana.

EH

Dior glaðningur fyrir heppinn lesanda

Skrifa Innlegg

8 Skilaboð

  1. Alexandra

    17. December 2013

    Þið eruð mjög líkar! – Hvaða kinnalit ertu með?

  2. Guðný

    17. December 2013

    Mæðgur ? neiii Systir :) ótrúlega fallegar báðar tvær :* þú ljómar af hamingju og fegur

    jólakveðja

  3. Anna

    17. December 2013

    Falleg kápa? Geturu gefið upp hvað hún kostar?

  4. Andrea

    18. December 2013

    Frekar eins og systur! Mamma þín er svo flott og báðar gordjöss :)

  5. Birna Bryndís

    20. December 2013

    vá hvað þið eruð flottar og fallegar! mér finnst þið mjög líkar og mamma þín er náttúrulega bara eins og stóra systir :)