fbpx

MAC á RFF #1

MACmakeupMakeup ArtistRFF

Hér í Hörpu eru allir löngu mættir. Fyrstu makeup artistarnir mættu klukkan 7 til að stilla upp og raða vörum. Í þessum skrifuðu orðum eru makeup artistar MAC á fullu að gera fyrirsæturnar tilbúnar fyrir fyrstu sýningarnar. Ég er búin að koma mér vel fyrir hérna baksviðs og verð hér á fullu með myndavélina og leyfi ykkur sem sitjið fyrir framan tölvuna að upplifa þetta með mér. 

Hér í dag eru 2 teymi sem innihalda hæfileikaríkustu makeup artista MAC á Íslandi. Guðbjörg Huldís og Fríða María stjórna sitthvoru teyminu og á eftir bætist Steinunn Þórðardóttir en hún sér um makeupið fyrir sýninguna hans Munda en Fríða og Guðbjörg sjá um makeup fyrir hinar 6 sýningarnar – 3 hvor.Þessi ótrúlega girnilega hyljarapalletta er hér á öllum borðum, þessa verð ég eiginlega bara að eignast finnst ykkur ekki;)Dazzle Lash maskarinn er mikið notaður í dag hér á RFF.

Það verður góð stemming hérna baksviðs í dag – það er ég alveg viss um!

EH

Mundi & RFF

Skrifa Innlegg