fbpx

Liu Wen – Fegurð úr austri

Estée LauderFashionFyrirsæturmakeup

Liu Wen er kínversk fyrirsæta sem hefur verið í uppáhaldi hjá mér lengi. Hún er alltaf mjög áberandi á tískuvikunum og er á meðal vinsælustu fyrirsætanna í dag. Árið 2012 var hún í 5. sæti yfir 50 vinsælustu kvenfyrirsætur heims á models.com. Hún hefur t.d. gengið í sýningum fyrir Rodarte, Derek Lam, Michael Kors, Carolina Herrera, Proenza Schouler, Alexander Wang, Fendi, Bottega Veneta, Salvatore Ferragamo og Balenciaga

Það sem heillar mig mest við hana eru þessir asísku andlitsdrættir mér finnst svo mikil mýkt í þeim – hún er svo mikil náttúruleg fegurð. Mér finnst hún alltaf bera af í þeim tískusýningum sem hún tekur þátt í alla vega fangar hún mína athygli með einhverjum wow factor sem ég hef ekki enn getað áttað mig á hver er almennilega.

Liu er ekki bara áberandi á tískupöllunum heldur er hún líka eitt af andlitum snyrtivörumerkisins Estée Lauder. Merkið var með makeup lúkk fyrir sýningu Derek Lam og þar sýndi hún að sjálfsögðu! Hér sjáið þið makeup artistann Tom Pecheux leggja lokahönd á makeup-ið hennar fyrir sýninguna. Ég er orðin svo húkkt að ég finn einhverja makeup tengingu við allt sem ég skrifa:) Mæli með að þið lítið eftir henni á sýningunum sem eru framundan!

EH

Lúkk - Anna Sui FW13

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Elísabet Gunn

    16. February 2013

    Hún er með svo fallegar varir og svo fýla ég (næstum engu) augnhárin á henni. Sammála. Náttúrulega falleg!