fbpx

Lúkk – Anna Sui FW13

DiorInnblásturlorealLúkkmakeupMakeup TipsMaybellineMitt MakeupShiseidoSmashbox

Þegar ég skoðaði myndirnar frá sýningunni hennar Önnu Sui varð ég samstundis ástfangin af förðuninni. 60’s all the way!! Ég var harðákveðin í að reyna að leika þetta lúkk eftir og það gerði ég í dag á meðan sonurinn svaf… ég var samt mjög hissa yfir því að honum brá ekkert að sjá mömmu sína svona svakalega málaða þegar hann vaknaði – ætli hann sé ekki strax búin að venjast þessu, 6 vikna…. ;)

Hér sjáið þið afraksturinn:

Í lúkkið notaði ég:

  • Diorskin Nude BB krem
  • True Match hyljara frá L’Oreal
  • O Glow kinnalit frá Smashbox
  • Master Precise Smoky blýant í svörtu frá Maybelline
  • Automatic Fine Eyeliner frá Shiseido
  • Color Riche hvítan eyeliner frá L’Oreal
  • Baby Lips varasalva í nude lit frá Maybelline

Ég byrjaði á því að grunna augnlokin með svarta smoky blýantinum frá Maybelline og lagaði svo til útlínurnar, gerði spíssinn og gerði litinn þéttari með blauta eyeliner pennanum frá Shiseido. Elska svona eyeliner penna – þarf eiginlega að skella sem fyrst í eyeliner umfjöllun ;) En enn og aftur biðst ég afsökunar á skelfilegum augabrúnum en þessu verður kippti í lag sem fyrst. Ætli hárkúrinn virki á augabúnavöxt….Þetta makeup er klárlega eitt af mínum uppáhalds so far. Ég ákvað að fara í grettukeppni við Cöru Delevingne – eins og þið sjáið á Instagram hjá mér til hliðar þá vann hún…..

EH

Nýtt í Fataskápnum

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Steinunn Edda

    15. February 2013

    Ó! Þetta er dásamlegt! Verd ad prófa þetta í vinnunni!! ;)