fbpx

Leyndarmál Makeup Artistans: Sjálfbrúnka

ÁramótBiothermCliniqueDiorHúðlorealMakeup TipsNip+Fab

Mig langaði að deila með ykkur umfjöllun sem átti að fara í síðasta tölublað Reykjavík Makeup Journal en ég hafði bara því miður ekki tíma til að klára í tæka tíð fyrir útgáfu blaðsins. Ég ákvað því að best væri að geyma umfjöllunina og birta hana á blogginu fyrir áramótin :)

Fyrir hátíðirnar langar okkur að líta vel út. Á köldum íslenskum vetrum er húðlitur flestra íslenskra kvenna ekki sá dekksti og til að fá frísklegan lit og ljóma í húðina mælum við með sjálfbrúnkuvörum. Fyrst og fremst er það að sjálfsögðu mun betra fyrir húðina heldur en að skella sér í ljósabekki sem ég er ekki hrifin af. Ég ákvað að taka saman nokkur góð ráð þegar kemur að notkun sjálfbrúnkukrema og skreyti umfjöllunina með myndum af sjálfbrúnkukremum sem fást á Íslandi.

  • Áður en þið berið á ykkur sjálfbrúnku er gott að venja sig á undirbúa yfirborð húðarinnar vel með því að nota húðskrúbb og nærandi krem.
  •  Með því að nota húðskrúbb pússum við yfirborð húðarinnar og hjálpum henni við að endurnýja sig. Húðin er stærsta líffærið okkar og hún er stanslaust að endurnýja sig.  Það er nauðsynlegt að hjálpa húðinni við að fjarlægja dauðar húðfrumur svo það sé nú nóg pláss fyrir þær nýju.

Screen Shot 2013-12-28 at 9.58.00 PM

  • Langflest snyrtivörumerki bjóða upp á góða skrúbba sem er gott að venja sig á að nota um það bil einu sinni í viku. Skrúbbana er gott að geyma í sturtunni til að gleyma þeim örugglea ekki.
  •  Eftir að þið hafið skrúbbað húðina er gott að næra hana með bodylotion Ef húðin er mjúk og vel nærð er auðveldara að bera sjálfbrúkuna á. Liturinn verður líka jafnari og fallegri þar sem húðin er þá búin að fá góðan raka og þarf ekki að taka allan rakann úr sjálfbrúnkunni. Þið getið fengið bodylotion sem hentar ykkar þörfum, hvort sem það eru rakamikil krem eða jafnvel krem með smá stinningaráhrifum

Screen Shot 2013-12-28 at 10.04.27 PM

  • Þegar það er komið að því að bera sjálfbrúnkuna á er gott að passa upp á að þið séuð með hreinar hendur.
  • Munið að þvo ykkur um hendurnar um leið og þið eruð búnar að bera sjálfbrúnkuna á sérstaklega ef þið eruð með brúnkukrem sem eru með lit í. Liturinn getur fest sig auðveldlega í rákum í húðinni á höndunum. Til að koma í veg fyrir það getið þið líka notað þar til gerða hanska.

Screen Shot 2013-12-28 at 10.08.28 PM

  • Sjálfbrúnkuúðar gefa jafna og flotta áferð og auðvelda okkur að setja sjálfbrúnkuna á svæði líkamans sem við eigum erfitt með að ná til eins og bakið og aftan á lærin. Það er líka sniðugt að nota úðana til að setja sjálfbrúnku á hendurnar. Þá setjið þið úðann á hendurnar síðast, eftir að þið eruð búnar að þvo ykkur vel um hendurnar kreppið þá fingurnar og spreyjið yfir hendurnar. Þannig passið þið uppá það að áferð litarins verði jöfn.
  • Þegar þið spreyið á húðina sjálfbrúnkuúða þá er gott að hafa í huga að halda úðanum í ákveðinni fjarlægð svo liturinn verði jafn. Haldið ykkurþó  í smá fjarlægð frá hvítum veggjum og innréttingum þar sem liturinn gæti farið þangað.

Screen Shot 2013-12-28 at 10.14.50 PM

  • Mörg merki eru með sérstök sjálfbrúnkukrem fyrir líkama og önnur fyrir andliti. Þessi sem eru fyrir andliti eru oftar en ekki jafn litsterk, léttari og rakameiri. Oft getur nefninlega verið vandasamt að fá jafna áferð yfir andlitið og því hjálpar það að hafa mikinn raka svo það sé auðvelt að dreifa úr því.
  • Þið getið að sjálfsögðu líka blandað smá rakakremi útí sjálfbrúnkukremið til að mýkja það upp og deyfa litinn smá. Ef þið notið hanska þá er sniðugt að setja smá af sjálfbrúnkunni í hanskann ásamt jafn miklu magni af bodylotion. Blandið formúlunni saman örlítið í hanskanum og berið á húðina.

Screen Shot 2013-12-28 at 10.20.56 PM

  • Ef þið eruð þolinmóðar þá er hægt að fá sjálfbrúnkukrem sem eru með stigvaxandi brúnkuáhrifum. Liturinn kemur þá smám saman en oft þarf að nota þau nokkra daga í röð til að fá litinn sem þið viljið. Þessi krem eru mjög rakamikil og gefa oft náttúrulegri lit.

Screen Shot 2013-12-28 at 10.28.04 PM

  • Ef þið gleymið að bera á ykkur sjálfbrúnkuvörur og eða hafið lítinn tíma til að taka ykkur til fyrir viðburð, þar sem ykkur langar að líta vel út, þá eru til sjálfbrúnkuvörur sem gefa samstundis lit. Þær vörur eru þannig gerðar að þær smita ekki lit í fötin en það getur þó verið góð hugmynd að leyfa þeim að þorna aðeins á húðinni til að tryggja að þau smitist örugglega ekki.
  • Eftir að þið hafið borið á ykkur sjálfbrúnku er sniðugt að leyfa kremunum að jafna sig aðeins á húðinni. Gefið þeim nokkrar mínútur og nýtið tækifærið og flettið í gegnum uppáhalds tímaritið ykkar á meðan þið bíðið.

Screen Shot 2013-12-28 at 10.35.30 PM

Ég vona að þessu umfjöllun komi til með að hjálpa ykkur og mögulega aðeins gefa ykkur sýn á það sem er í boði hér á Íslandi þegar kemur að sjálfbrúnkuvörum. Þetta er heilmikill frumskógur af vörum – sjálf kem ég til með að nota Instant Tan kremið frá St. Tropez. Ég er með 1 árs afmælisveislu í hádeginu á gamlársdag og tvær kökur sem gamla mamman þarf að baka. Ég hef engan tíma til að bera á mig sjálfbrúnku ;)
EH

Spennandi snyrtivörunýjungar 2014 #1

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

8 Skilaboð

  1. Dísa

    29. December 2013

    Þar sem þú fjallar um mikilvægi þess að skrúbba og næra húðina fyrir brúnkukrem langar mig að deila uppáhalds aðferðinni minni til þess – þar sem ég slæ tvær flugur í einu höggi! Ég blanda í semi jöfnum hlutföllum kókosolíu og hrásykri og skrúbba því vel á allan líkamann í sturtunni, skola svo sykurinn af en kókosolían helst á líkamanum eftir að maður skolar og þurrkar :) Bara passa að þvo með sturtusápu áður, þar sem sturtusápan eyðileggur rakann úr olíunni :)

  2. Inga Rós

    29. December 2013

    Frábær umfjöllun. St.Tropez er best! Ég þoli samt ekki orðið sjálfbrúnka. Ég heyri aldrei neinn segja þetta en voðalega margir skrifa þetta og þetta er notað í auglýsingum…afhverju ekki bara brúnkukrem, brúnkufroða, brúnkugel o.s.frv??

    • Reykjavík Fashion Journal

      30. December 2013

      Haha ég nota sjálfbrúnka því ég þoli ekki orðið brúnkukrem:) en þetta er kannski mest notað því þetta er bein þýðing frá orðinu self-tanning :)

  3. Jenný A.

    30. December 2013

    Ég er skíthrædd við að bera brúnkukrem á andlitið, festist það ekkert í svitaholunum?

    • Reykjavík Fashion Journal

      30. December 2013

      Notaðu gott rakakrem fyrst og leyfðu því að jafna sig á húðinni:) settu svo kremið í bónullarskífu og strjúktu henni yfir andlitið og þá færðu jafna áferð;) annars er líka snilld að setja sprey yfir andlitið!

  4. Sigrún

    30. December 2013

    Mæli hiklaust með Self tanning gelinu frá Loreal – kemur mjög eðlilega út, góð lykt af því og virkilega gott að setja á sig.

  5. Íris Rut

    15. January 2014

    Eco tan frá sudo eru líka rosalega góð, fást í Hagkaup ;)