fbpx

Konukvöld Smáralindar

LúkkMakeup ArtistMaybellineVarir

Ég ætlast til þess að hitta sem flesta lesendur á Konukvöldi Smáralindar í kvöld. Ég verð þar sem gestakennari fyrir Maybelline og ætla að kenna gestum og gangandi að setja á sig varalit og ekki bara hvernig liti sem er heldur sumarliti. Ég hef ákveðið að segja þessum kulda stríð á hendur og innleiða eitt heitasta makeup trendið fyrir sumarið núna í mars – bjartir varalitir.

Nýju litirnir frá Maybelline heita Color Sensational Vivids og eru varalitir í björtum litum sem eru með sérstaklega sterkum litapigmentum. Aðferðirnar sem ég ætla að kenna er  hvernig er hægt að gera ombre varir, hvernig er hægt að matta varalitina og auðvitað að sýna einfalda leið við að bera á sig varalitina.

Ég ætla að reyna að vera frá 8-10 ef sonurinn leyfir og ég verð fyrir framan Lyfju á 1. hæð. Svo býður Maybelline uppá 20% afslátt af vörunum sínum bara í kvöld svo það er um að gera að koma og fylla á snyrtibudduna ef það er eitthvað sem ykkur vantar.

Sjáumst í Smáralind!

EH

Trend-Hittingur

Skrifa Innlegg

8 Skilaboð

  1. .

    14. March 2013

    Veistu hvort þessi æðislega vivid lína eigi ekki að koma á norðurlandið? Hef reyndar bara kíkt í Hagkaup og þetta er ekki komið þangað :/

    • Jú er Maybelline ekki selt í Hagkaup, held reyndar að það hafi verið frumsýning á þeim í Smáralind í gær svo þeir hljóta að vera væntanlegir eftir helgi:)

      • .

        15. March 2013

        JESS hlakka svo til :D

  2. Rakel

    14. March 2013

    Ég myndi sko mæta ef ég væri stödd á íslandinu og fá nokkur varalitatips frá þér! ;)
    Hvað heitir þessi bleiki – eða bleiku?

    R

  3. Hekla

    14. March 2013

    Hvað heitir þessi rauði í miðjunni? :)

  4. Rakel

    23. March 2013

    Ég fékk mér tvo varaliti úr þessari línu, nr. 906 og nr. 175 og er rosalega ánægð með þá!! Takk fyrir mig ;)