Ég ætlast til þess að hitta sem flesta lesendur á Konukvöldi Smáralindar í kvöld. Ég verð þar sem gestakennari fyrir Maybelline og ætla að kenna gestum og gangandi að setja á sig varalit og ekki bara hvernig liti sem er heldur sumarliti. Ég hef ákveðið að segja þessum kulda stríð á hendur og innleiða eitt heitasta makeup trendið fyrir sumarið núna í mars – bjartir varalitir.
Nýju litirnir frá Maybelline heita Color Sensational Vivids og eru varalitir í björtum litum sem eru með sérstaklega sterkum litapigmentum. Aðferðirnar sem ég ætla að kenna er hvernig er hægt að gera ombre varir, hvernig er hægt að matta varalitina og auðvitað að sýna einfalda leið við að bera á sig varalitina.
Ég ætla að reyna að vera frá 8-10 ef sonurinn leyfir og ég verð fyrir framan Lyfju á 1. hæð. Svo býður Maybelline uppá 20% afslátt af vörunum sínum bara í kvöld svo það er um að gera að koma og fylla á snyrtibudduna ef það er eitthvað sem ykkur vantar.
Sjáumst í Smáralind!
EH
Skrifa Innlegg