fbpx

Í sjónvarpinu mínu…

Ég Mæli MeðLífið Mitt

Það leiðinlegasta sem ég geri er að vera veik heima… – eitt það tilgangslausasta sem til er og fer óendanlega í taugarnar á mér þegar líkaminn segir stopp við mig – í dag er einn af þeim dögum. Þá er lítið annað að gera en að taka upp tölvuna og horfa á nokkra vel valda þætti. Ég hef stundum lagt í vana minn að deila mínum uppáhalds sjónvarpsþáttum með lesendum en það er dáldið síðan síðast. En þar sem ég ligg í veikindabælinu datt mér í hug að fleiri deila þeim aðstæðum með mér í dag því miður svo ég verð að segja ykkur frá uppáhalds þáttunum mínum þessa stundina…

Eitt af því sem er í uppáhaldi hjá mér við haustin er að uppgötva nýja sjónvarpsþætti. Venjulega byrja ég á því að gera lista yfir alla nýju þættina, tek test á þeim öllum og svo sigtast smám saman úr listanum. Nú er aðeins liðið á þessa þætti sem voru frumsýndir snemma í haust og það eru tveir sem standa framar öllum.

Jane the Virgin

janetv

Þetta er í alvörunni uppáhalds þátturinn minn í dag – algjör guilty pleasure þáttur. Þetta er endurgerð á spænskri sápuóperu sem fjallar um Jane sem er hrein mey, Jane fer í heimsókn til kvensjúkdómalæknis og óvart af mjög svo undarlegum ástæðum fer hún þaðan ólétt af barni yfirmanns síns – þetta er ekki spoiler ég lofa – það er svo mikið, mikið, mikið meira og þetta eru stórkostlegir þættir sem ég býð spennt eftir að sjá í hverri viku.

How to get Away with Murder

how-to-get-away-with-murder-1-w724

Tvö nöfn – Shonda Rhimes og Viola Davis – þegar þessar konur koma saman getur útkoman ekki verið önnur en stórkostleg. Viola leikur hér lagaprófessor og við fylgjumst með henni og hennar aðstoðarmönnum og nemum verja seka og saklausa í réttarsal. Þættirnir fara fram og aftur í tíma og morð sem framið var á skólalóðinni er gegnum gangandi í gegnum þættina og svo er framið annað morð sem tengist því en við erum ekki enn búin að fá að vita hver framdi það og afhverju þó ég hafi mína skoðun á málunum. Þið verðið alveg húkkt eftir fyrsta þátt því lofa ég. Ef þið vitið ekki hver Shonda Rhimes er þá er það konan á bakvið Greys og Scandal – halló snillingur!!

Ef þið eruð svo með SkjáEinn þá verða báðar þessar þáttaraðir í sýningu þar – Jane the Virgin byrjar núna í lok nóv ef ég man rétt og How to get Away with Murder stuttu seinna. Ég er með rásina og ætla klárlega að horfa aftur á þættina þar, þeir eru það góðir!

Sendi batakveðjur og knús á þá sem deila mínum ömurlegu aðstæðum – vona að þið náið ykkur fljótt!!

EH

Hátíðarlínan frá Dior: Golden Shock

Skrifa Innlegg

9 Skilaboð

  1. Sæunn

    18. November 2014

    Þetta gladdi mig.Ég er einmitt veik og vantar eitthvað að horfa á! Mæli samt með Devious Maids ef þú átt þá eftir :)

    • Reykjavík Fashion Journal

      18. November 2014

      Nei ég er byrjuð með þá en þetta minnir mig á að ég á eftir að klára seríu 2! :) Góðan bata!

  2. Bergdís Ýr

    18. November 2014

    Veikindapésinn hér gladdist við að sjá mælt með nýjum þáttum, ég er húkkt á How to.. en hef ekki séð hinn, Devious Maids hljómar líka vel!… Farið vel með ykkur stelpur :)

  3. Guðrún

    19. November 2014

    How to get away with murder er nattúrlega aðeins of spennandi!! En plís segðu mér að þú sért búin að horfa á Scandal?? looove it!

  4. Sigrún Alda Ragnarsdóttir

    19. November 2014

    Er einmitt líka veik og leita mér af góðum þáttum! Checka á How to get away with murder, takk :)

  5. Elísabet Gunnars

    19. November 2014

    Takk fyrir þessi tips….. kveðja, konan sem er alltaf á leiðinni að byrja að horfa á þætti. Nú reyni ég aftur. :)

  6. Hulda Rún

    21. November 2014

    ó hvað ég er glöð að ég er ekki sú eina sem er hooked á jane the virgin, ég elska þessa þætti!