fbpx

Gull eða Demantar

lorealmakeupMaskarar

Tveir maskarar sem ég er mjög spennt yfir að prófa eru þessir hér frá L’Oreal og Helenu Rubinstein. L’Oreal maskarinn er hluti af jólalínu frá merkinu sem einkennist af demöntum og maskarinn inniheldur örfínt demantapúður sem gefur formúlunni fallegan glans. Hins vegar inniheldur Helenu Rubinstein maskarinn örfínar gullagnir sem ýkja svarta litinn – maskarinn er gefinn út í tilefni af 110 ára afmæli snyrtivörumerkisins sem er í ár. Ég var að fá L’Oreal maskarann og er spennt að prufa hann og næst verður það svo HR maskarinn.

Svo er bara spurning hvort það eru demantar eða gull sem slær í gegn þessi jólin;)

EH

Jólavarir frá MAC

Skrifa Innlegg

4 Skilaboð

  1. Hildur

    28. November 2012

    Er hægt að fá Loréal maskarann á Íslandi????

  2. Anna

    28. November 2012

    Ég átti svona loreal maskara… extra black.. mikil vonbrigði. Var svört undir augun eftir 2 klukkutíma. Mylst mjög niður af honum!

    • Reykjavík Fashion Journal

      28. November 2012

      æjæj…:/ leiðinlegt að heyra, mér hefur einmitt alltaf þótt þessi týpa mjög góð svo ég er spennt að prófa demantana;)