Maður getur alltaf á sig skóm og varalitum bætt – það finnst mér alla vega og er sjálf aldrei á móti því að bæta öðru hvoru við í nú þegar alltof stórt safn! En eins og ég var búin að koma inná þá kom alveg risastór sending inní Bianco – uppáhalds skóbúðina mína um daginn, og útaf því ákváðum við að efna til smá gjafaleiks og gefa tveimur lesendum sitthvort skóparið!
Við Elísabet sem á skóbúðina völdum saman fjögur pör af skóm fyrir ykkur til að velja úr. Tvenn pörin koma í tveimur litum svo passið uppá að kíkja vel hvaða litir eru í boði svo þið getið valið ykkur skónna sem ykkur langar akkurat í!
En hefjum fjörið þá ég vona að ykkur lítist vel á þá sem við völdum – held að þessi ólétta hafi hrifist af háu hælunum sérstaklega svona þar sem hún getur ekki lengur gengið í þannig ;)
1. Þessir eru trylltir – ég veit nú alveg um þónokkrar dömur sem myndu ekki fúlsa við því að þessir myndu bætast í skóskápinn. Þessir eru til í svörtu og hvítu!
2. Mér finnst eitthvað voða kjút og sumarlegt við þessa. Opnir og fallegir skór sem eru flottir við sokkabuxur núna næstu vikur og svo bara við tásur í sumar. Þessir koma svartir og rauð orange.
3. Mér finnst þessir æði ég myndi persónulega velja þá ef ég „mætti“ taka þátt í leiknum. Finnst þeir svo kvenlegir og elegant og ég held þeir séu mjög stöðugir þar sem platformið á þeim er svo hátt. Þessir eru til svartir.
4. Svo verða nú að vera einir svona klassískir og maður á aldrei nóg af góðum skóm sem passa við öll tækifæri og henta vel í vinnu. Þessir eru ekta þannig og áferðin í efninu er virkilega falleg. Þessir eru til svartir.
Til að eiga kost á því að eignast par af þessum fallegu skóm þurfið þið að….
- Deila þessari færslu á Facebook með því að smella á deila takkann hér fyrir neðan.
- Skrifa athugasemd með fullu nafni (svo ég geti pottþétt haft uppá ykkur) við þessa færslu með hvaða skó ykkur langar í, í hvaða lit og í hvaða stærð!
- Smella á Like takkann á Facebooksíðu uppáhalds skóbúðarinnar minnar – BIANCO FOOTWEAR ICELAND.
Við drögum svo út tvo heppna sigurvegara á mánudaginn. Þar að auki langar mig að minna enn einu sinni á það að það er 20%-50% afsláttur af öllum skóm í búðinni vegna Kringlukastsins út mánudag (öll stígvél eru á 50%). Svo það er um að gera að skóa sig upp!
Eigið yndislega helgi***
EH
Leikurinn er ekki kostaður, hann er eingöngu hugsaður til að gleðja lesendur og ég vona að þið hafið gaman af:)
Skrifa Innlegg