fbpx

Ég og Sui He

Mitt MakeupShiseidoSnyrtibuddan mínVarir

Við eigum ekki margt sameiginlegt – hún er asísk ofurfyrirsæta og ég er förðunarbloggari á Íslandi. Það sem við eigum þó sameiginlegt er að við erum báðar mjög hrifnar af nýju varalitalínunni frá Shiseido. Eins og ég hef talað um hér og í viðtölum þá eru sterkir og áberandi varalitir í uppáhaldi hjá mér fyrir sumarið framundan. Perfect Rouge varalitirnir gefa vörunum þétta litaáferð svo innihalda þeir ótrúlega sterk litapigment sem endast allan daginn! Ég lét reyna á einn litinn á RFF setti hann á mig um hálf 9 um morgun og bætti ekki á varirnar fyr en í lok hátíðarinnar um 6 leytið þá var liturinn samt alveg fullkominn ennþá. Það eina var að vörunum mínum vantaði aðeins meiri raka svo þess vegna setti ég meiri lit á. Ég notaði ekki varablýant til að láta litinn endast betur – ef ég hefði gert það þá hefðu þeir án efa enst lengur.Rauði liturinn sem ég er með á vörunum er sá sami og Sui He er með á vörunum í auglýsingaherferðinni nr RD514.
Þessi fallegi fjólubleiki litur er nr. RS320.

Ég veit ekki með ykkur en ég fæ búst af sjálfstrausti þegar ég er með sterkan varalit á vörunum – mæli með því að þið prófið.

EH

Einfaldlega Falleg

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð