Ég setti inn mynd á Instagrammið mitt í dag af naglalakki dagsins – ég skipti mjög ört! Vegna vinsælda ákvað ég að það væri kominn tími til að sýna ykkur línuna sem lakkið tilheyrir í heild sinni og litina sex sem eru fáanlegir í henni.
Naglalakkalínan heitir Crystallize og þetta eru Color Show naglalökk frá Maybelline sem eru á leið í verslanir þessa stundina en þau eru komin á flesta sölustaði Maybelline á höfuðborgarsvæðinu eða verða það nú fyrir helgi. Lökkin eru mjög skemmtileg með mattri sandáferð og minna óneitanlega á OPI Sand lökkin sem voru partur af hátíðarlínu merkisins síðasta ár. Þessi eins og OPI hátíðarlökkin innihalda mikið af grófum glimmerögnum sem venjulegu sandlökkin frá OPI gera ekki.
Hér sjáið þið litina sem eru í boði og fyrir neðan sjáið þið hvernig þeir koma út á mínum nöglum. Liturinn Rose Chic sá sem ég var með á Instagram myndinni. Virkilega fallegur rósagylltur litur með silfruðu glimmeri.Light Up, silfurlitað lakk með silfurlituðum glimmerögnum. Þetta lakk er ekki eins þétt og hin hér hefði ég eiginlega þurft að bæta á þriðju umferðinni.Liturinn heitir Silver Touch og hann er í raun mun ljósari en hann virðist á myndinni minni. Virkilega fallegu litur og minn uppáhalds úr þessari línu.Red Excess, svarbrúnn litur með koparrauðum glimmerögnum sem koma skemmtilega út. Mér finnst ég fá mjög töff neglur með þessu lakki. Koparrauði liturinn er mun meira áberandi í raun en myndin er of dökk.Nearly Black, eins og nafnið gefur til kynna þá er þetta nánast svart lakk en með marglitum glimmerögnum. Mjög skemmtilegt lakk sem ég held að flestir gætu kunnað við þar sem það er ekki beint neinn litur í aðalhlutverki heldur alls konar mismunandi í gangi.
Green Depth aftur nánast svart naglalakk með grænum glimmerögnum. Liturinn er þó mun grænni í raun en myndin er heldur dökk hjá mér.
Virkilega skemmtileg lökk og ekki skemmir verðið fyrir en venjulegu Color Show lökkin eru undir 1000kr í verslunum og þessi líklega á sama eða svipuðu verði. Svo það er hægt að leyfa sér að prófa fleiri en einn lit.
Ég nota base coat undir mínar neglur og ég mæli með því að þið gerið slíkt hið sama, eins má ekki setja top coat yfir þetta lakk til að eyðileggja ekki áferðina. Svo setti ég tvær umferðir af lit yfir allar neglurnar.
EH
Skrifa Innlegg