fbpx

Bjuggu til sinn eigin MAC varalit

MACNýjungar í Snyrtivöruheiminum

Þið vitið ekki hvað ég varð græn af öfund þegar ég sá að skvísurnar á The Coveteur höfðu farið í heimsókn í höfuðstöðvar MAC í Toronto – ég varð grænni þegar ég sá að þær voru ekki bara í heimsókn heldur var þeim boðið þangað til að fá að búa til sinn eigin MAC varalit. Þvílíkur draumur og myndirnar eru hver annarri skemmtilegri. Virkilega skemmtilegt að sjá hvernig þessir einstöku varalitir verða til og ég hvet ykkur til að fara hingað – The Coveteur – og lesa alla söguna.

Á næstu dögum er svo væntanleg ný lína í verslanir MAC sem inniheldur matta varaliti og varalitablýanta í stíl – ég held ég verði ekki eldri og sé fyrir mér margar skemmtilegar færslur í varalitadagbókina með nokkrum af þessum fallegu litum!

TVW9MmgQlx0vwysqM26QbDWH6uV7wHpxHWxkPmsvDMg,QzqmImluieV4cHD81THZiSRhb_dZHzSOQCOAlUdbVMsÉg held mér finnist þessir sem eru á sitthvorum endanum flottastir – eiginlega líka samt þessir tveir sem eru fyrir innan þá. En að þurfa að velja á milli svona fallegra lita er að sjálfsögðu bara lúxusvandamál – ekki satt ;)

Vissuð þið að það selst einn varalitur og einn augnskuggi frá MAC á tveggja sekúndna fresti – magnað!

EH

Reykjavík Makeup Journal 1. tbl

Skrifa Innlegg

4 Skilaboð

  1. Rakel Ósk

    23. October 2013

    Ég held að þessir nr. 2 og 7 séu alveg málið ;) Allavega í budduna hennar Rakelar

  2. ágústa

    23. October 2013

    Geðveikt!

  3. Brynja Björk

    24. October 2013

    óguð þetta er of mikið úrval af geggjuðum litum, ég mun kaupa þá alla oh!