Laugardagurinn byrjaði eldsnemma hjá mér en hann byrjaði miklu fyr hjá makeup artistum MAC sem voru margar hverjar mættar klukkan 7 til að hefja störf fyrir sýningar dagsins. Alveg hreint stórkostlegar stelpur sem eiga mikið hrós skilið fyrir störf sín á Laugardaginn. Þegar ég mætti um níu leitið þá voru þær á fullu að undirbúa fyrstu sýningu dagsins sem var fyrir Farmers Market.
Lúkkið var frísklegt og fyrirsæturnar virtust útiteknar og frísklegar með freknurnar sem Fríða María setti yfir andlit þeirra með grófum bursta og lit fyrir augabrúnir sem eru notaðir í airbrush vélar. Freknurnar komu ekkert smá vel út eins og þið sjáið hér á myndunum.
Vegna fjölmargra fyrirspurna er kannski tilvalið að taka það fram að allar myndirnar sem ég er búin að vera að taka fyrir RFF eru teknar á Canon vél sem heitir Canon Eos M sem fæst í Nýherja.
Þær voru nú alveg dásamlegar yngstu fyrirsæturnar tvær sem eru systur, þeim fannst alveg stórmerkilegt að fara í smá förðun og voru svo ánægðar með fallegu hárgreiðslurnar sínar. Ég heyrði í þeim útundan frá mér baksviðs þegar þær voru að biðja um að fá að vera allan daginn baksviðs þeim fannst þetta svo gaman.
EH
Skrifa Innlegg