fbpx

Baby Shower

Lífið Mitt

Ég átti yndislegan dag í gær með flottum stelpum! Ein af mínum bestu vinkonum á von á lítilli stelpu í lok maí og að því tilefni tóku 2 vinkonur hennar sig til og skipulögðu óvænta barnasturtu fyrir hana. Veislan heppnaðist svo vel og Hrefna mín kom alveg af fjöllunum.

Almennt þá er ég nú ekkert sérstaklega hrifin af því að innleiða svona ameríska siði en þetta var samt svo gaman. Þarna komum við saman hennar nánustu vinkonur, verðandi ömmur, langömmur, ömmusystur og afasystur og fengum að samgleðjast með henni. Hún fékk allt það nauðsynlega sem hún þarf að hafa með sér uppá spítala þegar allt fer af stað og að sjálfsögðu fín föt bleik og rauð:)

Ég gaf henni samfellu og náttgalla og ég hef aldrei fengið jafn mikinn valkvíða í einni verslunarferð! Ég stóð í stelpudeildinni í Lindex og vissi ekkert hvað ég átti að kaupa – ekta strákamamma. Svo skellti ég í nokkrar fínar vanillubollakökur.

Til hamingju aftur Hrefna mín ég hlakka svo til að hitta verðandi tengdadóttur mína <3

EH

Opnun Freebird

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Inga

    30. April 2013

    Ég er rosa forvitin hvort þú vitir hvar þessu fallegu sogrör fást? :)

  2. Inga

    2. May 2013

    Æði takk fyrir þetta ;)