fbpx

5 ára í dag

Lífið Mitt

5. júní 2009 er dagurinn okkar Aðalsteins.

Fyrir ykkur sem vitið það ekki þá erum við Aðalsteinn svona Grease par. Við kynntumst þegar Grease var sett upp í Loftkastalanum sumarið 2009. Aðalsteinn var dansari í sýningunni en ég aðstoðarleikstjóri og sýningarstjóri. Þetta gerðist allt frekar hratt hjá okkur en við héldum þessu nú leyndu í smástund fyrir samstarfsfólki okkar. Á einum stað í sýningunni var ég föst ein bakvsiðs að stjórna diskókúlunni. Þegar verndarengillinn syngur Beauty School Drop Out. Aðalsteinn kom alltaf til mín og við dönsuðum saman baksviðs á hverri einustu sýningu. Það má því eiginlega segja að þetta sé lagið okkar sem mér finnst dáldið skemmtilegt ég efast einhvern vegin um að það séu margir sem eiga einmitt þetta lag eins og við:)

Hér sjáið þið fyrstu paramyndina sem var tekin af okkur, nýútskrifuð úr menntaskóla.

6015_148734702951_100347_n

Svo ein nýjasta paramyndin sem var tekin í eins árs afmæli Trendnets síðasta haust…

1234458_569656416415838_401785340_n

Smá breyting á þessu pari á nokkrum árum, allt í einu orðinir fullorðnir foreldrar og brúðkaup framundan. Lífið er fullkomið því ég fæ að eyða ævinni með besta vini mínum sem ég dái og dýrka útaf lífinu.

Deginum munum við því miður eyða lítið saman vegna veikinda barns og kvöldvinnunnar minnar en við bætum okkur það upp á morgun! Til hamingju með daginn okkar ástin mín***

EH

 

Rakamaskinn sem ég verð að prófa!

Skrifa Innlegg

13 Skilaboð

  1. Thorunn

    5. June 2014

    Æj til hamingju- ýkt sæt saga! Ég ætla einmitt að halda upp á 1,5 árið okkar Harry þar sem hann er bara of yndislegur <3

  2. Elín Lovísa

    5. June 2014

    Til hamingju með daginn ykkar, lang besti sambandsdagurinn ;-)

  3. Saga Steinsen

    5. June 2014

    Til hamingju með daginn ykkar!! ❤️

  4. Sirra

    5. June 2014

    Awww þið eruð svo mikil krútt!! Til hamingju með daginn elskurnar :*
    Ég vona að Tinni sé ekki mikið veikur! Sendi batakveðjur :)

  5. Guðbjörg Hulda

    6. June 2014

    Til hamingju með hvort annað elskurnar :)

  6. Brynja Guðnadóttir

    6. June 2014

    Til hamingju með hvort annað ;)