fbpx

4 Flottar í Nóvember!

Fashion

Þessar 4 flottu konur eiga það allar sameiginlegt að hafa vakið eftirtekt með klæðaburði sínum núna í byrjun nóvember – þær eiga allar athyglina skilið að mínu mati.Rosie Huntington-Whiteley í Gucci SS2013 á Art Film Gala í LA. Græni liturinn fer þessari flottu konu ótrúlega vel. Hárið er uppsett svo rufflurnar á baki kjólsins fá að njóta sín. Marion Cotillard í SS2013 Christan Dior – hverju öðru – á frumsýningu nýjustu myndarinnar sinnar Rust & Bone í LA. Mér finnst þessi kjóll alveg dásamlegur hefði ekkert á móti því að eiga einn svon inní skáp. Kjóllinn er blanda af silki og ull, síðu og stuttu, dökku og ljósu.Miranda Kerr í Isabel Marant kápu á leiðinni á æfingu fyrir Victoria’s Secret tískusýninguna sem fór fram fyrir helgi. Þvílík skvísumamma hér á ferð.Alexa Chung í hlébarðamunstri á fremsta bekk á Victoria’s Secret tískusýningunni. Þessi flotta kona nær alltaf að finna flott jafnvægi í dressunum sínum, ekki of fín, ekki of kvenleg – meira svona smekklegur boyish töffari. Fýla eldraðu varirnar!

EH

Annað Dress

Skrifa Innlegg