fbpx

15% afsláttur fyrir lesendur RFJ af Múmín vörum

Ég Mæli MeðFallegtLífið MittNetverslanirShopTinni & Tumi

Þegar ég opnaði tölvuna í gærmorgun beið mín ótrúlega skemmtilegur tölvupóstur frá höfuðstöðvum Múmínálfanna í Helsinki. Dálæti mitt á múmínálfunum og færslurnar mínar um þá höfðu þá vakið eftirtektir og mér var boðið að fá afsláttarkóða fyrir lesendur mína sem gefur ykkur 15% afslátt í Múmínvefversluninni All Things Moomin – sem opnaði nýlega fyrir það að senda til Íslands.

Ef þið eruð jafn hrifnar af múmín og ég þá vona ég að þið getið nýtt ykkur kóðann sem er fashionjournal en hann verður virkur út maí. Ég ætla klárlega að nýta hann sjálf.

Ég hef nú þegar deilt með ykkur nokkrum kaupum mínum í vefversluninni en það sem ég elska við hana er að ég fæ í alvörunni pakkann heim að dyrum ég hef ekki þurft að fara á pósthús og sækja.

Ég ákvað að taka saman smá óskalista bæði með vörum sem mig langar í og vörum sem ég á og finnst alveg æðislegar!

 

Þessir bollar finnst mér ómissandi í safnið mitt – ég á afmælisbollann en ef þið eigið hann ekki þá veit ég að það er sending af honum væntanleg í vefverslunina og þeir eru byrjaðir að taka pantanir (ég er sko á póstlistanum;)). Sumarbollinn er líka bara limited, ég hef reyndar ekki keypt hann fyr en nú mér hefur ekki fundist hann flottur, en jólabollann hef ég keypt síðustu tvö ár. Svo finnst mér nýju mömmu og pabba bollarnir æðislegir – svo fallegir litir og mér finnst þessir flottari en þeir sem fyrir voru. En reyndar finnst mér nýju múmínsnáðabollinn og snorkstelpu bollinn ekki nógu flottir fannst gömlu sætari:)

Fyrir börnin… hrikalega flottur kantur í rimlarúm, falleg sængurver og þessi órói er æðislegur. Tinni Snær fékk pappaóróann sem var til inní Aurum, pabbi keypti hann í Finnlandi áður en hann fæddist. En ég held að þessi sé betri uppá það að bangsarnir eru svo stórir og þau sjá þessa miklu fyr.

Múmínborðbúnaður er ómissandi… Öll fjölskyldan mín tekur þátt í þessu múmínæði mínu með mér. Tinni fékk diskasett í nafnagjöf og skeiðarnar en ég keypti nýlega þennan bakka sem er fullkominn undir niðurskorna ávexti eða osta eða bara til að bera kaffi og veitingar úr eldhúsi og inní stofu.

Ég er hrikalega skotin í þessum baðslopp fyrir Tinna Snæ! Lampinn er fullkominn inní barnaherbergi en það er líka til eins hattifatta lampi sem er mjög skemmtilegur en mögulega krípí fyrir börn í myrkri þar sem þeir minna dáldið á drauga… Ef ég væri með stærri íbúð eða Tinni með sérherbergi þá væri ég án efa búin að kaupa múmínleikhús fyrir hann.

moominmamma-25-cm_e87c148108fea39dac83f84b4ffa92e6_1385208093Eins og ég segi þá tekur öll fjölskyldan mín þátt í múmínæðinu mínu en pabbi fór í tvær ferðir til Finnlands sumarið áður en Tinni Snær fæddist og hann á alla múmínbangsana eins og ég sýndi HÉR. Mér finnst þetta æðislegir bangsar og Tinni er mjög hrifinn af þeim – Pjakkur og Mía eru þó allra vinsælust.

Ég minni á að kóðinn er fashionjournal og er virkur út maí! HÉR er svo slóðin á vefverslunina aftur – go nuts ;)

EH

Litsterkar og flauelsmjúkar varir

Skrifa Innlegg

7 Skilaboð

  1. Sólveig

    8. May 2014

    Þarftu að borga einhvern toll af vörunni þegar hún kemur til þín?? :)

  2. Helena

    8. May 2014

    Mig langar svo í afmælisbollann en ég sé að hann kostar alveg 4600 í vefversluninni en í búðunum hérna heima held ég að hann sé á sama verði og hinir bollarnir. Eða er ég að rugla? Þannig það er þá ekki að borga sig að panta afmælisbollann en allir hinir eru ódýrari en hérna heima sé ég.

    • Sko ég er ekki alveg með á hreinu hvort hann sé á sama verði alls staðar en ég veit að hann er á sama verði og hinir bollarnir í Artform og í Suomi Prkl. Ég hef ekki forvitnast annar staðar. Ég fattaði þetta einmitt bara um daginn – ég keypti mína og þá sem ég gaf mjög snemma og finnst endilega eins og ég hafi ekki borgað svona mikið fyrir þá – þá hefði ég kannski bara gefið einn bolla á síðunni ;) Mögulega hafa þeir hækkað verðið vegna vinsælda. En þá er bara að nýta sér afsláttinn fyrir hina bollana ;)

  3. Helena

    9. May 2014

    já hinir bollarnir eru á mjög góðu verði með afslættinum:) snilld að geta notað þennan kóða!