Ég ákvað um daginn að prófa að gera video vöruumfjöllun og sjá hvernig ykkur litist á.
Í myndbandinu tek ég fyrir nýjasta maskarann frá L’Oreal, False Lash Wings. Maskarinn er með gúmmíbursta og formúlan inniheldur örfína trefjaþræði sem eru 1,2 mm á lengd. Þræðirnir leggjast ofan á augnhárin ykkar svo þau virðast lengri. Með maskaranum er auðvelt að byggja upp löng og þykk aunghár. Í myndbandinu hér fyrir neðan sýni ég ykkur muninn á augnhárunum mínum eftir eina umferð og svo eftir tvær.
Ég er virkilega ánægð með útkomuna á myndbandinu og mér finnst ég segja allt sem segja þarf um þennan maskara. Ég vona að ykkur lítist vel á þessa tegund umfjöllunnar, því þá verður meira um þær í framtíðinni.
Ég legg þetta í ykkar hendur – á ég að koma með fleiri svona umfjallanir í framtíðinni. Ég tek öllum like-um og hjörtum sem jákvæðum atkvæðum!
EH
Skrifa Innlegg