Ég var búin að nefna það að páskafríið mitt hefði farið mikið í það að taka til sem mér finnst svo sem bara fínt af því heimilið þurfti svo sannarlega á því að halda! Þegar maður er í fjórum vinnum og með lítið barn þá er eitthvað sem þarf að mæta afgangi :)
Ég hef ekki tölu á því hve margar þvottavélar ég fór í gegnum í um helgina þær voru óteljandi margar. Auk þess tók það mig þónokkra daga að raða saman förðunardótinu mínu í nýja snyrtiborðið mitt – jeijj! Mig vantaði meiri hirslur undir vörur og borðið sem ég var með var engan veginn með nóg pláss svo ég tók skyndiákvörðun um að selja það og fara í IKEA og búa til mitt eigið borð. Ég valdi litla hvíta borðplötu, hvíta skúffueiningu undir hana og einfalda borðfætur. Svo er ég búin að vera að raða og raða öllu saman en það passaði reyndar ekki allt saman í skúffueinginuna svo ég er enn með nokkra kassa undir borðinu – langar dáldið í einhverjar glærar skúffueinginar til að setja ofan á borðið en er með smá valkvíða :)
Hér sjáið þið nýja snyrtiborðið….
Hér er allt smekkfullt! Ég ákvað að sýna ykkur bara ofan í tvær skúffur þar sem hinar þrjár eru ekki alveg nógu fínar ég þarf að raða aðeina betur saman. Varalitir, varasalvar, gloss og varablýantar eiga heima hér ásamt nokkrum aukahlutum en litirnir sem ég nota mest eru á borðinu. Húðvörurnar sem ég er að nota mest þessa dagana eru ofan á snyrtiborðinu. Húðolían og olíukremið frá L’Oreal eru nýjungar sem eru væntanlegar á Íslandi en auk þeirra eru hér nýja Superdefense rakakremið frá Clinique sem er æðislegt og Wake Up Wonder krem frá Olay sem vekur húðina á morgnanna – algjört snilldar krem!Næsta krem sem ég ætla að testa er þetta frá Dior – DreamSkin hér er búið að setja nokkrar snyrtivörur saman í eina og markmiðið er að gera yfirborð húðarinnar fallegra, nærðara og byggja upp varnir gegn öldrun húðarinnar. Önnur Dior nýjung er líka þarna fyrir aftan Skin Perfect úr Hydralife línunni frá Dior sem er fullkomin fyrir þurra húð.Sumarilmvötnin mín – Dolce frá Dolce & Gabbana og sumarilmurinn frá Miss Dior!Einstakt trio frá Chanel sem ég þarf að segja ykkur frá á næstunni – virkilega heillandi hugsun á bakvið þau.Góður kaffibolli er ómissandi við skriftir við snyrtiborðið – helst í uppáhalds múmínbollanum mínum.
Hvernig líst ykkur á nýja snyrtiborðið mitt. Ef þið eruð eins og ég með ógrynni af vörum sem þarf að koma fyrir mæli ég með þessari uppsetningu – fékk þetta allt saman í skrifstofudeildinni í IKEA ;)
EH
Skrifa Innlegg