Ég held að langflestir sem hafi séð hvað fór fram á sýningu JÖR by Guðmundur Jörundsson séu sammála um að sýningin hafi slegið í gegn! Stíliseringin var fullkomin og hvert dress var úthugsað – persónulega fannst mér engir sér hápunktar í sýningunni heldur var sýningin í heild sinni hápunktur hátíðarinnar – og hvert dress í sýningunni var hápunktur sýningarinnar. Það sást vel strax baksviðs þegar var verið að undirbúa fyrirsæturnar fyrir sýninguna. Samtals tóku 21 fyrirsæta þátt í sýningunni og það var því mikið að gerast baksviðs þar sem förðunin sem Fríða María hannaði var mjög flókin á tímabili voru nánast allar sminkurnar baksviðs farnar að mála fyrirsætur – hvort sem þær voru í teyminu hennar Fríðu Maríu eða Guðbjargar Huldísar. Allt var mjög vel skipulagt hjá MAC fyrir hraðaskiptin en þónokkrar fyrirsætur komu úr sýningu Siggu Maiju og svo kom ein fyrirsæta úr sýningu Cintamani sem var beint á undan JÖR. Allt gekk þó upp og þrátt fyrir smá seinkun virtist gestum RFF alveg sama – spennan fyrir sýningunni var það mikil.
Ég fylgdist að sjálfsögðu með öllu sem fór fram baksviðs og hér sjáið þið það sem var á seyði… Það var einstakt að fá að fylgjast með hæfileikaríku makeup artistunum frá MAC gera þessa trylltu förðun fyrir JÖR. Mér finnst myndirnar sem þið eruð vonandi búin að skoða vel segja allt sem segja þarf um hæfileikaríka fólkið sem vinnur baksviðs við að gera RFF einn flottasta tískuviðburðinn á hverju ári!
Fríða María sló í gegn með þessa förðun hjá mér alla vega en mér fannst svo sem allar farðanirnar æðislegar enda mikill aðdáandi þeirra Fríðu Maríu og Guðbjargar Huldísar.
Ég á nóg af baksviðs myndum eftir til að sýna ykkur svo í vikunni.
EH
Skrifa Innlegg